Ein­falt hjá Chelsea sem sækir að toppnum

Sindri Sverrisson skrifar
Nicolas Jackson og Enzo Fernández fagna marki þess fyrrnefnda en báðir voru á skotskónum í dag.
Nicolas Jackson og Enzo Fernández fagna marki þess fyrrnefnda en báðir voru á skotskónum í dag. Getty/Malcolm Couzens

Chelsea er í 3. sæti, stigi á eftir Manchester City og sex stigum frá toppliði Liverpool, eftir nokkuð þægilegan 2-1 sigur gegn Leicester á útivelli í dag.

Leicester náði að minnka muninn seint í uppbótartíma eftir að vítaspyrna var dæmd á Romeo Lavia. Jordan Ayew skoraði úr spyrnunni en þá var rétt um mínúta eftir af leiknum og Leicester náði ekki að nýta hana.

Þetta var fyrsti leikur eftir landsleikjahlé í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, síðasta slíka hléið fram í mars.

Chelsea komst yfir eftir korters leik þegar Nicolas Jackson skoraði, eftir að hafa nýtt líkamlegan styrk sinn vel gegn Wout Faes og skorað með skoti úr teignum.

Enzo Fernández átti stoðsendinguna á Jackson og Argentínumaðurinn skoraði svo sjálfur seinna mark Chelsea, á 75. mínútu, þegar hann fylgdi á eftir skalla frá Jackson sem var varinn. 

Þetta var fyrsta mark Enzo Fernández á leiktíðinni.

Yfirburðir Chelsea voru miklir í leiknum og Leicester átti í miklum vandræðum með að skapa sér færi.

Kasey McAteer átti þó skot rétt framhjá markinu, skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks, en tókst ekki að jafna metin.

Stephy Mavididi vildi líka fá vítaspyrnu fyrir Leicester þegar rúmar fimm mínútur voru eftir, er hann féll við í teignum þegar hann var að fara framhjá Wesley Fofana, en ekkert var dæmt. 

Leicester fékk þó vítaspyrnu í uppbótartíma, eins og fyrr segir, og náði að minnka muninn en það var of seint.

Leicester hefur nú aðeins fengið eitt stig samtals úr síðutsu fjórum leikjum sínum og er í 16. sæti með tíu stig, þremur stigum frá fallsæti nú þegar öll liðin í fallbaráttunni eiga leik til góða um helgina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira