Innlent

Há­tíðar­dag­skrá víða um land á verkalýðsdaginn

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá kröfugöngu ASÍ.
Frá kröfugöngu ASÍ. así

Blásið verður til kröfugöngu og hátíðarhalda víða um land í dag í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí. 

Alþýðusamband Íslands hefur tekið saman dagskrá í tilefni dagsins, sem nálgast má hér að neðan. 

Reykjavík

  • Safnast saman á Skólavörðuholti kl. 13:00
  • Kröfugangan leggur af stað klukkan 13:30. Lúðrasveit Verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi.
  • Útifundur á Ingólfstorgi Kl. 14:00. Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar.
  • Ræðu flytja Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis.
  • Bríet og Úlfur Úlfur flytja tónlist og í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk.

VR er með fjölskylduhlaup á Klambratúni Kl. 11:30

  • Sylvía Erla úr Bestu lögum barnanna og Íþróttaálfurinn hita upp fyrir hlaupið sem er 1,5 km leið í kringum túnið. Þátttaka er ókeypis og allir þátttakendur fá verðlaunapening.
  • VÆB og ANÍTA skemmta okkur og Sirkus Íslands verður á svæðinu. Boðið upp á grillaðar pylsur, bulsur, gos og safa.
  • VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Efling heldur fjölskylduhátíð í Kolaportinu á milli klukkan 15:00 og 17:00. VR verður með sitt árlega verkalýðskaffi fyrir félagsfólk í anddyri Laugardalshallar kl. 14:30 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Félagsmönnum aðildarfélaga hjá Húsi Fagfélaganna: 2F (Rafiðnaðarsamband Íslands, VM, Byggiðn – Félag byggingarmanna, FIT (Félag iðn- og tæknigreina), MATVÍS og Samiðn) er boðið í 1. maí kaffi að kröfugöngu lokinni en kaffið hefst kl 14:00 að stórhöfða 29-31. (gengið inn Grafvarvogsmegin)

Félagsmönnum aðildarfélaga BSRB, gestum og gangandi er boðið í 1. maí kaffi að göngunni lokinni að Grettisgötu 89.

Hafnarfjörður

  • Samstöðu- og baráttutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH (Starfsmannafélags Hafnarfjarðar) verða haldnir í Bæjarbíói, kl. 14:00.
  • Fram koma JóiPé og Króli, Eyþór Ingi og Jóhanna Guðrún. Boðið verður upp á veitingar á staðnum.

Akranes

  • Verkalýðsfélag Akraness, Sameyki, VR, FIT, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. Maí.
  • Safnast verður saman við skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness að Þjóðbraut 1, kl. 14 og genginn hringur að bæjarskrifstofum Akraness þar sem hátíðardagskrá hefst í sal eldri borgara.
  • Björg Bjarnadóttir framkvæmdarstjóri SGS flytur hátíðarræðu, fjöldasöngur og Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög.
  • Boðið verður upp á kaffi og kökur að hætti kórsins.

Stykkishólmur

  • Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá á Fosshótel Stykkishólmi.
  • Dagskráin hefst kl. 13:30
  • Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir, Kjölur
  • Ræðumaður: Saga Kjartansdóttir, verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits ASÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
  • Tónlistaratriði, Salka Sól og Karl Olgeirsson

Sambærileg dagskrá hefst 14:30 í Grundarfirði og Snæfellsbæ 15:30.

Borgarnes

  • Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur standa fyrir hátíðar- og baráttufundi sem hefst í Hjálmakletti, Borgarnesi kl. 14:30.
  • Ávarp, atriði frá Tónlistarskólanum í Borgarnesi, Bjarni Freyr Gunnarsson tekur lagið. Ræðu dagsins flytur Aleksandra Leonardsdóttir. Einnig koma fram Barnakórarnir og Jón Jónsson.
  • Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffihlaðborð að fundi loknum. Foreldrar og nemendur 9.bekkjar í Grunnskólanum í Borgarnesi sjá um veitingar.
  • 12:00 bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðali – popp og svali í boði

Búðardalur

  • Kjölur Stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands og Sameyki standa saman að samkomu í Dalabúð kl. 13:30.
  • Ávarp dagsins flytur Signý Jóhannesdóttir.
  • Jón Jónsson og Kórinn Hljómbrot koma fram.

Ísafjörður

  • Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00 með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi
  • Hátíðardagskrá í Edinborg
  • Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson
  • Tónlistaratriði: Fagranesið tekur nokkur lög og barnakór Tónlistarskólans 3. til 4. bekkur syngur.
  • Pistill dagsins: Lísbet Harðar Ólafardóttir
  • Maraþonmenn tala lagið
  • Slysavarnardeildin Iðunn sér um kaffiveitingar í Guðmundarbúð að lokinni dagskrá í Edinborgarhúsinu.
  • Bíó fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og kl. 16:00 - 10 líf
  • Bíó fyrir eldri í Ísafjarðarbíói kl. 20:00 – The Fall Guy

Patreksfjörður

  • Bíó fyrir börn kl. 16:00 - 10 líf

Flateyri

  • Dagskrá hefst á Bryggjukaffi á Flateyri kl. 15:00.
  • Verkalýðsfélagið Skjöldur 90 ára, Hljómsveitin ÆFING 55 ára. Sögur, myndir, tónar. BIBarinn og Siggi Björns leiða dagskrá.

Bolungarvík

  • Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur býður í kaffi og meðlæti kl. 14:00.
  • Unglingastig Grunnskóla Bolungarvíkur sér um kaffiveitingar. Tónlistarskóli Bolungarvíkur og Karlakórinn Ernir skemmta.

Akureyri

  • Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri miðvikudaginn 1. maí
  • 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
  • Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
  • Kynnir er Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna, Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM
  • Hátíðarræða, Finnbjörn A. Hermannsson – forseti ASÍ
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Gosa
  • Ívar Helgason tekur lagið
  • Kaffihressing að dagskrá lokinni
  • Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.

Fjallabyggð

  • Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði miðvikudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00
  • Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna og kaffiveitingar

Húsavík

  • Stéttarfélögin standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík. Hátíðin hefst kl. 14:00. Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, hátíðarræða, auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gefstum með mögnuðum tónlistaratriðum.
  • Ruth Ragnarsdóttir syngur Maístjörnuna við undirleik Ísaks M. Aðalsteinssonar
  • Hátíðarræða: Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags
  • Tónsmiðjan spilar og syngur nokkur lög
  • Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur flytja tónlist
  • Ávarp: Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar stéttarfélags
  • Geirmundarsveifla: Flytjendur Jónína Björt Gunnarsdóttir, Guðrún Arngrímsdóttir, Maja Eir Kristinsdóttir, Pétur Valgarð Pétursson og Grétar Örvarsson

Vopnafjörður

  • Félagsheimilinu Miklagarði – Gunnar Smári Guðmundsson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
  • Borgarfjörður eystri
  • Álfheimum – Aleksandra Radovanovic flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Seyðisfjörður

  • Félagsheimilinu Herðubreið - Sverrir Mar Albertsson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Egilsstaðir

  • Hótel Héraði - Nikulás Daði Arnarson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Reyðarfjörður

  • Heiðarbær – Ágúst Ívar Vilhjálmsson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Eskifjörður

  • Melbær- Sverrir Kristján Einarsson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Neskaupstaður

  • Hótel Hildibrand- Sunna Júlía Þórðardóttir flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Fáskrúðsfjörður

  • Glaðheimum –Jón Kristinn Arngrímsson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Stöðvarfjörður

  • Grunnskólanum Stöðvarfirði – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Breiðdalsvík

  • Hamar kaffihús - Bára Kolbrún Pétursdóttir flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Djúpivogur

  • Hótel Framtíð – Guðrún Aradóttir flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Hornafjörður

  • Heppa restaurant- Sigurður Einar Sigurðsson flytur ávarp
  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Selfoss

  • Kröfuganga hefst klukkan 11:00.
  • Lúðrasveit Selfoss leiðir gönguna frá Austurvegi 56 að Hótel Selfoss þar sem að dagskrá og skemmtun fer fram.
  • Kynnir er Jónas Yngvi Ásgrímsson, frá VR
  • Ræðumaður verður Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
  • Annar ræðumaður verður Klaudia Joanna Figlarska, nemandi í ML
  • Fríða Hansen ásamt Alexander Frey taka lagið.
  • Afrekshópur dansakademíunar kemur fram.
  • Fimleikadeild UMFS sér um andlitsmálun.
  • Kaffi, kökur og veitingar.

Vestmannaeyjar

  • 1. maí verður verður haldinn hátíðlegur í AKÓGES
  • Húsið opnar kl. 14:00 og verður tekið á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum.
  • Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar ásamt Skólalúðrasveit Vestmannaeyja sjá um tónlistaratriðin.
  • Ávarp, kaffi, vöfflur og fleira á boðstólnum.

Reykjanesbær

  • Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félags- fólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttu- fund í Stapa, Hljómahöll kl.14:00 til 16:00. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
  • Mummi Hermanns leikur ljúfa tóna. Guðbjörg Krismundsdóttir,
  • formaður VSFK, setur dagskrá. Ræðumaður dagsins er Hilmar Harðarson, formaður FIT.
  • Bjartmar Guðlaugsson tekur nokkra klassíska slagara,
  • Guðlaugur Ómar frá Leikfélagi Keflavíkur, Karlakór Keflavíkur slær botninn í dagskrána.
  • Að venju bjóða stéttarfélögin upp á ókeypis bíósýningu fyrir börnin kl. 13.00 í Sambíóinu við Hafnargötu

Blönduós

  • Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi. Dagskráin hefst kl. 15:00
  • Boðið verður upp á frábæra tónlist og söng.
  • Ræðumaður dagsins: Sigurey A. Ólafsdóttir, formaður Stéttarfélags Samstöðu.
  • Afþreying fyrir börn, Kvenfélag Svínavatnshrepps sér um glæsilegar veitingar.

Grindavík

  • Dagskrá fellur niður sökum hamfaranna í Grindavík.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×