Skoðun

„Dauðanefnd“ um endur- skoðun almannatrygginga hefur fellt sinn dóm!

Helga Björk Grétudóttir skrifar
Samtök Atvinnulífsins (SA), Alþýðusamband Íslands (SA) sem eru með 50 aðildarfélög, og Landssamband eldri borgara (LEB) hafa lagt fram tillögu þess efnis að laun öryrkja séu 212.000 kr. á mánuði. Önnur heildarlaunasamtök svo sem svo sem Bandalag háskólamanna (BHM) með 26 aðildarfélög innan sinna vébanda og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSR) líka skipuð 26 aðildarfélögum – Kennarasamband Íslands (KÍ) með 7 aðildarfélög styðja þessi lágkúrulegu laun 212.000 kr. á mánuði fyrir öryrkja og aldraða.

Með öðrum orðum er þeim nákvæmlega sama um fyrrverandi starfsfélaga.

Engin fyrrnefndra heildarlaunasamtaka hafa skriflegt umboð frá öryrkjum og öldruðum þessa lands. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBI), Landssamtökin Þroskahjálp, Félag eldri borgara (FEB) og Landssamtök eldri borgara (LEB) hafa heldur ekki skriflegt umboð frá öryrkjum og öldruðum til samningsgerðar við ríki og sveitarfélög.

Við þurfum Landssamtök öryrkja og aldraðra sem annast stéttarfélagsmál.

Allt og sumt sem nefnd um endurskoðun almannatrygginga býður hinum smánuðu er 212.000 kr. á mánuði. Á sama tíma eru umboðslausir fulltrúar heildarlaunasamtaka atvinnulífsins og forsvarsmenn hagsmunasamtaka á launum sem eru að lágmarki 900.000 kr. í mánaðarlaun og þar fyrir ofan. Aumir loddarar mega þeir heita sem gefa lítt fyrir bágborna stöðu öryrkja og aldraðra.

Skömm og óþarfa þjáningar

Skerðing á kjörum öryrkja og aldraðra sem enn hefur ekki verið leiðrétt og neikvæð viðhorf til þeirra valda þeim skömm og óþarfa sálarþjáningum sem leiða til sjálfsvíga.

Fyrir 3 árum gekk ég á fund aðildarfélaga heildarlaunasamtakanna og spurði sérhvert aðildarfélag hvað það gerði fyrir félagsmenn sína. Eftir margra mánaða bið kom sannleikurinn í ljós. Engin aðildarfélög heildarlaunasamtaka atvinnulífsins gera eitt né neitt fyrir sína fyrrverandi félagsmenn, nema einstaka aðildarfélag sem lánar þeim sumarbústaði, sem velflestir öryrkjar geta ekki þegið vegna fjárskorts. Sem þeir geta ekki nýtt sér þar sem velflestir hafa ekki efni á eiga bíl, né reka. Margur nýtur ekki aðstoðar ættingja sinna sér til hjálpar og er því margur öryrkinn félagslega einangraður.

Lágmarkslaun 18 ára unglings eru hins vegar 260.000 kr. á mánuði, sem að öllu jafnan hækka eftir 3, 6, 9 og 12 mánuði. Fari viðkomandi unglingur á námskeið t.d í líkamsbeitingu við þrif, fær viðkomandi þrepahækkun, sem jafnvel svarar til 3 ára sérfræðináms á háskólasviði. Mér er spurn, hver eru þá laun hins 19 ára unglings á meðan öryrkjum og öldruðum á BARNATAXTA er ætlað að lifa á 212. 000 kr.? Þess ber að geta að lágmarkslaun innan raða Bandalags háskólamanna (BHM) eru 350.000.

Nú er engin stjórnvaldsákvörðun gild nema ákvörðun um dagsetningu sé fastákveðin. Ég óska eftir svari frá stjórnarflokkunum, Sjálfstæðisflokki og Framsókn, fyrir 1. september 2016.

Því beini ég þeirri spurningu til ykkar hvort afturvirk leiðrétting á kjörum öryrkja og aldraðra verði fullgilt fyrir 1. september samkvæmt lögjöfnun?

Þá vil ég hreinskilið svar frá stjórnarandstöðuflokkunum Sam­fylkingunni, Bjartri framtíð, Pírötum og Vinstri hreyfingunni grænu framboði.

Öll svör verða birt á fésbókarsíðum öryrkja og aldraðra!

Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Hvað má mangó kosta?

Hólmfríður Drífa Jónsdóttir,Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Skoðun

Staða barnafólks á Ís­landi

Steindór Örn Gunnarsson,Agla Arnars Katrínardóttir,Agnes Lóa Gunnarsdóttir,Árni Dagur Andrésson,Hildur Agla Ottadóttir,Kári Freyr Kane,Oddur Sigþór Hilmarsson skrifar

Sjá meira


×