Innlent

"Ef ég hefði vaknað klukkutíma seinna hefði ég dáið"

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Þriggja ára gömul stúlka og fjórir fullorðnir voru í lífshættu þegar eldur kom upp í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í eigu Dróma í Kópavogi í nótt. Íbúi segir engar brunavarnir vera í húsinu og að það hafi verið lán að ekki fór verr.

Eldurinn kviknaði í ísskáp í sameiginlegu eldhúsi á neðri hæð hússins um hálf þrjúleytið í nótt. Fimm sváfu á efri hæðinni. Móðir og þriggja ára stúlka í einu herbergi, tveir í öðru og einn frammi á gangi en það var hann sem vaknaði við reykinn og gerði öðrum viðvart. Einn reykskynjari er í húsinu en hann er óvirkur.

„Það eru engir reykskynjarar. Það var eins gott að ég vaknaði fljótt. Þegar ég vaknaði var þetta hræðilegt," segir Kamil Lewicki, íbúi við Vesturgötu 27.

Þú varst heppinn að þú skyldir taka eftir reyknum. „Já. Ég var mjög heppinn. Vinir mínir vöknuðu seint. Ef ég hefði vaknað klukkutíma seinna hefði ég dáið."

Litla stúlkan og þrír aðrir voru fluttir slysadeild með vott af reykeitrun en fólkið hefur nú náð sér.

Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ er Vesturvör 27 Iðnaðar og skrifstofuhúsnæði og því ekki leyfilegt að nýta það til búsetu. Það hefur samt sem áður verið gert til margra ára.

Vissir þú að þetta væri iðnaðarhúsnæði? „Nei."

Hafðirðu ekki hugmynd um það? „Nei"

Það er Drómi sem er eigandi hússins sem og þess sem við hliðina á en fyrirtækið tók við þeim um miðjan febrúarmánuð af eiganda sem hafði áður gert samning við aðila sem leigði íbúðirnar út.

Forsvarsmenn Dróma segjast hafa frétt af leigjendunum fyrir skömmu og átt fund með leigusalanum á mánudag að viðstöddum lögfræðingi. Þeir segjast jafnframt lítið geta aðhafst í stöðunni en samningurinn sem leigusalinn gerði við fyrrum eiganda rennur út í ágústmánuði.



Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu gerði alvarlegar athugasemdir við brunavarnir í báðum húsunum fyrir þremur árum og bað eigandann um að hætta að leigja út íbúðir. Kópavogsbær hefur haft vitneskju um þetta í nokkur ár en ekkert hefur breyst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×