Íslenski boltinn

"Maður var alveg stjarfur og frosinn“

„Mín upplifun af þessu var svo sem ekki merkileg. Ég byrjaði leikinn, við vorum búnir að fá fínt færi til að skora og KR líka. Svo kemur sending fram, leikurinn er búinn hjá mér og það er allt svart."

Þannig rifjar Elfar Árni Aðalsteinsson upp viðureign Breiðabliks og KR í gærkvöldi. Elfar Árni lenti í slæmu samstuði eftir fjögurra mínútna leik, rotaðist og höfðu nærstaddir áhyggjur af lífi hans.

Ragna Baldursdóttir, unnusta Elfars Árna, var á staðnum og var skiljanlega áhyggjufull.

„Svo þegar kallað var á hjartastuðstæki og byrjað að hnoða var mér ekki alveg sama. Maður var bara stjarfur og frosinn enda vissi maður ekkert hvernig ástandið var."

„Svo líður smá tími og móðir hans og bróðir fara niður til hans. Ég beið aðeins uppi en kom svo niður eftir að sjúkrabíllinn var farinn. Ég fékk svo far með formanninum upp á sjúkrahús þegar ég vissi svo sem að það væri allt í lagi og hann kominn til meðvitundar"

Baldur Ingimar Aðalsteinsson, bróðir Elfars Árna, viðurkennir að hann hafi óttast um líf Elfars.

„Já, auðvitað þegar maður heyrir að kallað er eftir hjartastuðtæki og farið er að hnoða hann þá líður manni ekki vel."

Viðtöl Valtýs Björns Valtýssonar, íþróttafréttamanns á Stöð 2, við Elfar Árna og fjölskyldu má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir

Elfar Árni: Brattur þrátt fyrir svolitla ógleði

Blikinn Elfar Árni Aðalsteinsson var merkilega brattur er Vísir heyrði í honum í dag. Hann rotaðist í leiknum gegn KR í gær og var fluttur með hraði upp á spítala en óttast var um ástand hans um tíma.

Elfar Árni kominn heim til sín

Elfar Árni Aðalsteinsson var í morgun útskrifaður af Landspítalanum þar sem hann lá í nótt eftir að hafa verið hætt kominn í knattspyrnuleik í gær.

Hættulegar afleiðingar höfuðhögga

Afleiðingarnar geta verið heilabólga eða í versta falli dauði. "Þetta stórhættulega seinna högg getur komið fram nokkrum dögum eða vikum eftir fyrra höfuðhöggið, það á sér í raun engin tímamörk,“ segir Jón Benjamín.

Prestur talaði við leikmenn Breiðabliks og KR

Vel var hlúð að leikmönnum Breiðabliks og KR í kjölfar þess að leiknum var frestað. Leikmenn treystu sér eðlilega ekki til þess að spila eftir að Elfar Árni Aðalsteinsson hafði verið fluttur á brott í sjúkrabíl.

Ólafur Kristjáns: Enginn í standi til þess að fara spila um einhver stig

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var gestur Pepsi-markanna í kvöld en þar fór hann yfir atburðarrásina á Kópavogsvellinum þar sem leikur Breiðabliks og KR var flautaður af eftir að Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður Breiðabliks, fékk slæmt höfuðhögg í upphafi leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×