18 látnir eftir flóð í Tælandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. janúar 2017 10:37 Flóðin hafa valdið miklum usla í landinu en venjulega er þurrt á þessum tíma árs. Vísir/EPA
Miklar rigningar eru nú víðsvegar í Tælandi með þeim afleiðingum að ár og vötn flæða nú bakka sína. Flóðin eru mannskæð en 18 manns hafa látið lífið auk þess sem þúsundir þorpa eru að mestu undir vatni. Flóðin hafa haft áhrif á líf nærri milljón manns í tíu fylkjum í landinu og herinn hefur verið kallaður út. Guardian greinir frá.Rigningarnar hafa breytt vegum í ár og drekkt mikilvægu ræktarlandi auk þess sem skólastarf rúmlega 1500 skóla í landinu hefur raskast. Þá hafa 18 manns drukknað vegna flóðanna. Samkvæmt veðurstofu Tælands er talið að þessar miklu rigningar muni halda áfram að minnsta kosti næstu tvo daga. Herinn hefur verið kallaður út til þess að hjálpa fólki að flýja flóðin sem og að veita þeim tímabundið skjól og útdeila hjálpargögnum, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkisstjórn landsins. Herinn hefur meðal annars notast við tvær þyrlur til að koma mat til fólks sem hefur orðið innlyksa í þorpum sínum vegna flóða. Slíkar rigningar eru óalgengar á þessum tíma árs í Tælandi en þar er allajafna þurrkatímabil í janúar. Á þessum tíma er gífurlegur fjöldi ferðamanna í landinu og hefur veðrið sett strik í reikninginn fyrir hundruði þeirra þar sem flugi hefur verið seinkað og lestar- og strætisvagnaferðir felldar niður.
Mest lesið Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Innlent Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira