Innlent

300 á bráðamóttöku vegna parasetamóleitrunar

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Þrjú hundruð manns leituðu á bráðamóttöku Landspítalans á sex ára tímabili vegna parasetamóleitrunar. Einn þeirra lést úr lifrarbilun.

Parasetamól eitrun er ein algengasta orsökin fyrir bráðri lifrarbilun í vestrænum löndum. Parasetamól má til að mynda finna í lyfjunum Panodil og Paratabs. Í vikunni var birt birt rannsókn þar sem kannað var hversu algeng parasetamól eitrun er hér á landi. Ingibjörg Kjartansdóttir lífeindafræðingur vann rannsóknina undir leiðsögn Einars Björnssonar yfirlæknis í meltingarsjúkdómum. Rannsakað var hversu margir leituð á Landspítalann á árunum 2004 til 2009 eða á sex ára tímabili vegna parasetamól eitrunar.

„Það kom í ljós að þetta er þónokkuð algeng koma á bráðamóttöku og líka það leiðir til innlagnar. Sem betur fer er það ekki mjög algengt að það verði lifrarbilun. Á þessu tímabili þá voru tæplega 300 sjúklingar sem að uppfylltu þessi skilyrði fyrir að hafa þessa eitrun og af þeim voru sirka níu sem höfðu lifrarbilun, eða sirka þrjú prósent og einn sjúklingur dó úr lifrarbilun af völdum parasetamólnotkunar," segir Einar Björnsson.

Einar segir það geta verið hættulegt að nota meira af lyfinu en ráðlagt er. Aðeins má taka átta tölfur á dag af lyfinu en dæmi hafi verið um að fólk hafi verið að taka tíu til fimmtán tölfur á dag, vikum og jafnvel mánuðum sama.

„Af þeim sem tóku þetta sem sagt langvarandi, aðeins of háa ráðlagða dagskammta, undir lengri tíma t.d voru með paratabs og parakódein saman vegna verkja. Töluverður fjöldi af þeim fékk alvarlegan lifrarskaða án þess að ætla sér það," segir Einar.

Einar segir parasetamól öruggt lyf ef það er notað rétt og ekki farið yfir ráðlagðann dagskammt. „Ég held að parasetamól sé gott lyf og eigi að nota í réttum skömmtum og ég held að menn verði að bera virðingu fyrir lyfjum," segir Einar að lokum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×