Ærandi þögn 7. júlí 2010 03:45 Hjálparstofnanir eru komnar í sumarfrí og á meðan verður ekki afgreiddur matur til fjölda fátækra sem staðið hafa í biðröðum til að fæða sig og sína. Félagsmálaráðherra segir að þetta sé á ábyrgð sveitarfélaga. Borgarstjóri er enn að kynna sér málið. Formaður velferðarráðs sagði að fátækir gætu sleppt því að greiða reikningana sína á meðan á þessu stendur og verkalýðshreyfingin sem áður talaði máli fátækra heldur sig til hlés. Á meðan aðrir búa við allsnægtir er fátæktin að aukast og fátækum að fjölga og flest er þeim mótdrægt. Kaupmáttur launa hefur lækkað um allt að fjórðung á tveimur árum, fjárhagsaðstoðin hefur lækkað samanborið við lægstu laun, atvinnuleysisbætur hafa ekki hækkað í eitt og hálft ár og húsaleigubætur hafa staðið í stað í 2 ár á meðan húsaleiga Félagsbústaða, sem flestir þeir sem njóta fjárhagsaðstoðar greiða, hækkar samkvæmt vísitölu. Sömu sögu eða verri má segja af elli- og örorkulífeyrisþegum. Þeir fátæku verða fátækari. Félagsmálaráðherra hefur kallað fulltrúa sveitarfélaga til samráðs um málið seinnipart vikunnar. Hann skal ekki gleyma því að stærstur hluti þeirra sem beðið hafa í röðum við hjálparstofnanir er á vegum hans ráðuneytis. Vilji ráðherrann bregðast við vanda fólks sem leitar til hjálparstofnana á hann að leggja sitt af mörkum til að leysa þann bráðavanda sem við blasir og leggja jafnframt til við við ríkisstjórn og á Alþingi að bætur verði hækkaðar. Þetta firrir sveitarfélögin þó ekki ábyrgð því eins og félagsmálaráðherra hefur bent á er framfærsluskyldan þeirra. Þeir sem njóta fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna, lögum samkvæmt eru þeir sem minnst hafa á milli handanna og væntanlega þeir sem mestar áhyggjur hafa af sumarlokun hjálparstofnana. Þessu fólki eiga sveitarfélögin að veita styrk nú þegar. Það sem ærir þó óstöðugan er afskiptaleysi Alþýðusambandsins. Fátækir áttu sér áður málsvara í verkalýðshreyfingunni. Fátækt fólk stofnaði verkalýðsfélögin og kom á réttlátara samfélagi. Þögn ASÍ er ærandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Hjálparstofnanir eru komnar í sumarfrí og á meðan verður ekki afgreiddur matur til fjölda fátækra sem staðið hafa í biðröðum til að fæða sig og sína. Félagsmálaráðherra segir að þetta sé á ábyrgð sveitarfélaga. Borgarstjóri er enn að kynna sér málið. Formaður velferðarráðs sagði að fátækir gætu sleppt því að greiða reikningana sína á meðan á þessu stendur og verkalýðshreyfingin sem áður talaði máli fátækra heldur sig til hlés. Á meðan aðrir búa við allsnægtir er fátæktin að aukast og fátækum að fjölga og flest er þeim mótdrægt. Kaupmáttur launa hefur lækkað um allt að fjórðung á tveimur árum, fjárhagsaðstoðin hefur lækkað samanborið við lægstu laun, atvinnuleysisbætur hafa ekki hækkað í eitt og hálft ár og húsaleigubætur hafa staðið í stað í 2 ár á meðan húsaleiga Félagsbústaða, sem flestir þeir sem njóta fjárhagsaðstoðar greiða, hækkar samkvæmt vísitölu. Sömu sögu eða verri má segja af elli- og örorkulífeyrisþegum. Þeir fátæku verða fátækari. Félagsmálaráðherra hefur kallað fulltrúa sveitarfélaga til samráðs um málið seinnipart vikunnar. Hann skal ekki gleyma því að stærstur hluti þeirra sem beðið hafa í röðum við hjálparstofnanir er á vegum hans ráðuneytis. Vilji ráðherrann bregðast við vanda fólks sem leitar til hjálparstofnana á hann að leggja sitt af mörkum til að leysa þann bráðavanda sem við blasir og leggja jafnframt til við við ríkisstjórn og á Alþingi að bætur verði hækkaðar. Þetta firrir sveitarfélögin þó ekki ábyrgð því eins og félagsmálaráðherra hefur bent á er framfærsluskyldan þeirra. Þeir sem njóta fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna, lögum samkvæmt eru þeir sem minnst hafa á milli handanna og væntanlega þeir sem mestar áhyggjur hafa af sumarlokun hjálparstofnana. Þessu fólki eiga sveitarfélögin að veita styrk nú þegar. Það sem ærir þó óstöðugan er afskiptaleysi Alþýðusambandsins. Fátækir áttu sér áður málsvara í verkalýðshreyfingunni. Fátækt fólk stofnaði verkalýðsfélögin og kom á réttlátara samfélagi. Þögn ASÍ er ærandi.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar