Afskiptasemi eða ábyrgð?

Fréttablaðið Aðsendar greinar 01. apríl 2011 11:58
Afskiptasemi eða ábyrgð?
Guðrún Jónsdóttir skrifar:
Unglingar eru á mikilvægum tímamótum í lífinu. Þeir teljast ekki lengur til barna né heldur eru þau fullorðin. Þau eru þó að fikra sig í áttina að því og það er hlutverk foreldra og annarra forsjáraðila að hjálpa þeim við það. Það gerum við best með því að skapa þeim trausta og örugga umgjörð til að prófa sig áfram í lífinu. Það er mikilvægt að innan þess ramma sem við setjum búum við þeim bæði nægjanleg og viðunandi vaxtarskilyrði. Markmiðið er að þau séu í stakk búin til að takast á við lífið þegar þau stíga út úr honum. Þannig viljum við að þau hafi tækifæri til að upplifa og þekkja mörk sín á öruggan hátt áður en ískaldur raunveruleikinn tekur við. Þannig vonumst við til ð búa til ábyrga einstaklinga.

Til þess að hlúa á þennan hátt að börnum og unglingum á Íslandi höfum við ýmis stoðkerfi í samfélaginu auk þess sem foreldrar eru forsjáraðilar barna sinna. Þegar uppeldisstofnanir og foreldrar vinna saman að velferð barna hefur komið í ljós að ákjósanlegustu niðurstöðurnar fást fyrir velsæld barna. Á þessari forsendu byggja Heimili og skóli starf sitt og vinna að því að styðja við foreldra í uppeldishlutverki sínu.

Fyrir stuttu kynntu Rannsóknir og greining niðurstöður rannsóknar á áfengisdrykkju íslenskra unglinga á fyrsta ári í framhaldsskóla. Kom þar fram að unglingar byrja nú síður að drekka þegar þeir eru enn í grunnskóla þegar borin eru saman árin 2004, 2007 og 2010. Sú forvarnarvinna sem unnin hefur verið síðustu 15 ár er enn að bera tilskilinn árangur. Aðrar þjóðir hafa horft til okkar um vel heppnað forvarnarstarf á þessu aldursbili.

Niðurstöðurnar gefa þó tilefni til að álykta að enn sé þörf á að efla forvarnarstarf á fyrstu árum framhaldsskóla. Forsjáraldur hér á landi er til 18 ára sem þýðir að okkur ber að hafa afskipti af þessum hópi. Ég sit fyrir hönd Heimilis og skóla í SAMAN hópnum sem vinnur nú ötullega að þessum málum.

Það hefur komið fram í rannsóknum sem gerðar hafa verið á högum unglinga að það skiptir sköpum um velferð þeirra að frístundastarf og tómstundir séu skipulagðar af ábyrgum aðilum. Með ábyrgum aðilum er átt við foreldra, skóla og aðrar stofnanir sem koma að uppeldi barna. Sýnt hefur verið að líkur á vímuefnaneyslu minnka við ástundum slíkra tómstunda auk þess sem þessi hópur sýnir betri námsárangur.

Að sama skapi hafa frístundir sem eru ekki á höndum ábyrgra aðila neikvæð áhrif á velferð unglinga. Þetta eru til dæmis eftirlitslaus partí og það að fara í bæinn á kvöldin án eftirlits.

Af ofantöldu má sjá að það er ekki að ástæðlausu að þeir aðilar sem vinna hér að forvarnarmálum vilja standa vörð um unglingaskemmtanir og framkvæmd þeirra. Einstaklingar sem skipuleggja slíkar uppákomur gera það eflaust í góðri trú. Þó ber að gæta þess að þeir hafa ekki þá áralöngu reynslu og þekkingu sem býr að baki þeim sem vinna með börnum og unglingum.

Þegar ekki er haft samráð við foreldra eða stofnanir sem hafa aðstöðu til að meta og skipuleggja unglingaskemmtanir er margt sem kann að fara úrskeiðis. Þetta skildi Páll Óskar þegar hann aflýsti balli sem fyrirhugað var á NASA á öskudaginn síðasta. Hann tók ábyrga afstöðu.

Til að kynna unglingaskemmtanir nota þeir sem satnda fyrir þeim oftast Facebook sem er auðveld leið til að ná til þessa hóps. Þannig getur kynningin á viðburðinum farið alfarið fram hjá ábyrgðaraðilum barnanna. Sú hefur verið raunin með unglingaböll sem haldin hafa verið undanfarið með leyfi lögreglu. Þetta býður þeirri hættu heim að börnin segi ekki hvert þau eru að fara og koma sér sjálf niður í bæ og heim aftur. Þá eru unglingarnir samankomnir eftirlistslausir niðri í miðbæ fjarri hverfinu sínu og heimili. Þannig ástandi hefur tekist að halda í skefjum með því frábæra forvarnarstarfi sem unnið hefur verið hér undarnfarin ár.

Velferðarráð og ÍTR tóku þá afstöðu að álykta gegn því að einkaaðilar gætu haldið skemmtanir án samráðs við þá aðila sem hafa sérstaklega með mál unglinga að gera. Þessar ályktanir nægja lögreglunni til að taka einnig afstöðu gegn slíkum skemmtunum. Ákvarðanir þessara aðila byggjast ekki á því að þeir séu á móti einkaframtaki fólks. Þeir byggja þessar ályktanir á reynslu og þekkingu sem til er um afleiðingar þess að hafa ekki strangt eftirlit með þessum málum.

Það er mikilvægt að unglingar fái tækifæri til að fikra sig áfram í lífinu á öruggan máta. Það er hluti af lífinu að skemmta sér. Vettvangur slíkra skemmtana þarf þó að vera innan þess ramma sem allir geta verið sammála um að sé uppbyggilegur og öruggur. Þetta þurfa foreldrar að ræða og meta með hliðsjón af þeim upplýsingum sem eru til um unglinga á Íslandi sem meðal annars er hægt að nálgast á www.rannsoknir.is. Á slíkum upplýsingum eigum við að byggja ákvarðanir um börnin okkar. Ekki því hvort okkur þyki Páll Óskar gordjöss eða ekki.

Guðrún Jónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Heimili og Skóla.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Má bjóða þér á stefnumót?

Sesselja Thorberg og Magnús Sævar Magnússon giftu sig fyrir sjö árum. Þau fara á stefnumót...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarður í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur – það munar um minna

Tugþúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóði inn á bankareikninga sín...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þungur kross brotaþola

Ung stúlka tilkynnir nauðgun í miðborg Reykjavíkur. Í umræðum um málið á netinu lætur ungu...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:04

Vændi og mansal er ekki það sama

Í daglegri umræðu hefur mansali og vændi oft verið blandað svo saman að fæstir kunna skil ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:00

Sýndarveruleikinn

Hvað skiptir máli í lífinu? Nú, ég held auðvitað að þetta sé sjálf lífsgátan. Ég myndi nef...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þrenns konar veiðistjórn

Dómur Landsdóms frá 23. apríl 2012 setur ný viðmið og mörk í þjóðlífinu. Þar virðist horfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Af hverju látum við ekki útgerðarmennina sjálfa ákveða hæfilegt veiðigjald?

Útvegsmannafélagið beinir því í auglýsingum til sveitarstjórna að leggjast gegn kvótafrumv...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Við borgum ekki

Ég veit ekki nema gleymdur sé nú sífelldur áróður Suðurnesjamanna um að þáverandi umhverfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lyktarmengun kallar á tafarlausar aðgerðir

Nýverið var haldinn íbúafundur í Mosfellsbæ um lyktarmengun frá urðunarstað höfuðborgarsvæ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Um smálán

Allt frá því að smálánafyrirtæki hófu innreið sína á íslenskan lánamarkað höfum við leitað...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Gullgæsin

Eitt mesta hitamálið þessa dagana er nýjasta kvótafrumvarp ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðard...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli

Ég rakst á forsíðufrétt á Mbl.is með fyrirsögninni "Spilaði tölvuleik í heilt ár“....  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mannleg meindýr

Menn eru misjafnir og samskipti þeirra með ýmsu móti. Sem betur fer er meirihlutinn gott f...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Bann við mismunun

Jafnrétti er hornsteinn mannréttinda, sá grunnur sem viðhorf okkar og samfélag byggja á. A...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Afskiptasemi eða ábyrgð?