Enski boltinn

Agger spilar mögulega um helgina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Meiðsli Daniel Agger eru ekki jafn alvarleg og þau voru talin í fyrstu og hefur meira að segja verið greint frá því að hann muni mögulega spila með Liverpool gegn Norwich um helgina.

Agger var borinn af velli í leiknum gegn Manchester United um helgina og óttaðist Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, að um alvarleg hnémeiðsli væri að ræða.

Blaðamaður staðarblaðsins The Liverpool Echo staðhæfir hins vegar að Agger hafi brugðist vel við meðhöndlun lækna og að mögulegt að hann spili um helgina. Hann segir enn fremur að Fabio Borini sé einnig á batavegi og geti mögulega byrjað að æfa á ný í lok vikunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×