Lífið

Alexandra Helga Ívarsdóttir Ungfrú Ísland 2008

Ingibjörg Ragnheiður, Alexandra Helga Ívarsdóttir og Sonja Björk Jónsdóttir.
Ingibjörg Ragnheiður, Alexandra Helga Ívarsdóttir og Sonja Björk Jónsdóttir. MYND/Ungfrú Ísland
Alexandra Helga Ívarsdóttir, 18 ára Reykjavíkurmær, var valin Ungfrú Ísland 2008 í gærkvöldi á Broadway. Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir, 23 ára Hornfirðingur, varð í öðru sæti, ásamt því að vera valin Valensia og Sothys stúlkan. Sonja Björk Jónsdóttir, 18 ára Dalvíkingur varð í þriðja sæti.

Ljósmyndafyrirsæta Íslands var valin Hanna Lind Garðarsdóttir og vinsælasta stúlkan Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir.

Símastúlkan, sem valin var í símakosningu áhorfenda Skjás eins, var Iðunn Jónasardóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.