Fótbolti

Alfreð reykspólaði fram úr Bale og Michu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Mynd/Nordic Photos/Getty
Alfreð Finnbogason skoraði tvö mörk fyrir Heerenveen í 3-2 sigri á Willem II í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Hann hefur þar með skorað 23 deildarmörk á tímabilinu og jafnað 33 ára gamalt met Péturs Péturssonar en enginn Íslendingur hefur skorað fleiri deildarmörk á einu tímabili í efstu deild.

Alfreð tók einnig risastökk á listanum yfir markahæstu leikmenn Evrópu en evrópski gullskórinn er eins og kunnugt er afhendur á hverju ári. Mörk leikmenn hafa þar mismundandi vægi eftir í hvaða deild þau eru skoruð.

Í bestu deildunum (England, Spánn, Þýskaland, Ítalía og Frakkland) er hvert mark tveggja stiga virði en Alfreð og aðrir í hollensku deildinni frá 1,5 stig fyrir hvert mark.

Alfreð hefur skorað 23 mörk og fengið fyrir það 34,5 stig sem skilar honum í 13. til 15. sæti á listanum. Alfreð var í 27. sæti fyrir helgina og hækkaði sig því um fjórtán sæti með þessum tveimur mikilvægu mörkum.

Alfreð fór meðal annars upp fyrir þá Gareth Bale hjá Tottenham og Michu hjá Swansea City sem báðir eru með 34 stig í 16. til 19. sæti.

Efstu menn í baráttunni um Gullskó Evrópu 2012-2013:

1. Lionel Messi, Barcelona 86 stig

2. Cristiano Ronaldo, Real Madrid 60 stig

3. Zlatan Ibrahimovic, PSG 52 stig

4. Radamel Falcao, Atletico Madrid 48 stig

5. Wilfried Bony, Vitesse 45 stig

6. Edinson Cavani, Napoli 44 stig

6. Robert Lewandowski, Borussia  44 stig

6. Luis Suarez, Liverpool  44 stig

9. Philipp Hosiner, Austria Wien 40,5 stig

10. Robin Van Persie, Man Utd 40 stig

11. Stephan Kiessling, Bayer Leverkusen 38 stig

12. Alvaro Negredo, Sevilla 36 stig

13. Alfreð Finnbogason, SC Heerenveen 34,5 stig

13. Graziano Pelle, Feyenoord 34,5 stig

13. Jackson Martinez, FC Porto 34,5 stig

16. Antonio Di Natale, Udinese 34 stig

16. Pierre-Emerick Aubameyang, St Etienne 34 stig

16. Michu, Swansea City 34 stig

16. Gareth Bale, Tottenham 34 stig

20. Henrik Mkhitaryan, Shakhtar Donetsk 33 stig

20. Carlos Bacca, Club Brugge 33 stig

20. Jonathan Soriano, FC Red Bull Salzburg 33 stig

20. Michael Higdon, Motherwell 33 stig

Sportið á Vísi er komið á Facebook. Fylgstu með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×