Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot

Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu.

Viðskipti erlent


Fréttamynd

Öl­gerðin hækkar verðin

Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.

Neytendur
Fréttamynd

Segir sjaldan hafa verið auð­veldara að vera fyrsti kaupandi

Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr.

Neytendur
Fréttamynd

Hættu við sam­runann vegna af­skipta Samkeppniseftirlitsins

Lyfja og Einar Birgir Haraldsson, eigandi Borgar apóteks, hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum kaupum Lyfju á Borgar apóteki í Borgartúni. Samrunatilkynning sem var til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur því verið afturkölluð. Ástæðan er sögð frummat Samkeppniseftirlitsins á samrunanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kvika sendi starfs­mönnum kalda kveðju

Formaður Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu segir skilaboð Kviku banka til starfsfólks skýr eftir að félagið greiddi milljarða í arð sama dag og ellefu var sagt upp. Botnlaus gróðafýsn stjórni ansi miklu í samfélaginu í dag. Forstjóri Kviku segir engin tengsl milli uppsagna og arðgreiðslu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hreyfing í við­ræðum Icelandair og flug­manna

Hreyfing er í kjaraviðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), að sögn ríkissáttasemjara. Icelandair hafi í kvöld kynnt heildstæðari nálgun á kjaramál flugmanna sem fulltrúar þeirra hafi nú til skoðunar. Fundi samningsaðila lauk um klukkan 21:35 í Karphúsinu og hafði staðið yfir frá 19:00.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Turninn á Lækjar­torgi fær nýtt líf

Söluturninn á Lækjartorgi fær nýtt líf í næstu viku en til stendur að opna þar ísbúðina Ísfabrikkuna. Nýir eigendur stefna á að framleiða og selja „fyrsta flokks ís úr alvöru hráefnum“ en einnig verður boðið upp á kaffi til sölu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg

Nokkur fjöldi þekktra kanóna úr íslensku samfélagi ætlar að opna nýtt kaffihús í vesturbæ Reykjavíkur þar sem verslunin Kjötborg verður til húsa þar til síðar í mánuðinum. Einn verðandi eigenda segir að um sé að ræða vinahóp sem hafi lengi haft þá hugmynd að tryggja að eitthvað yrði um að vera í húsnæðinu ef Kjötborg myndi loka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stærsti hluti land­búnaðar­lands ekki í virkri notkun

Tvö af hverjum þremur lögbýlum á Íslandi eru ekki í skráðum rekstri sem tengist landbúnaði og vísbendingar eru um að lögum sem eiga að takmarka óhóflega jarðasöfnun sé ekki beitt. Lagt er til að lög um eignarhald á jörðum verði hert í skýrslu á vegum Landbúnaðarháskólans.

Viðskipti innlent