Viðskipti innlent

Ársverðbólgan komin niður í markmið Seðlabankans

Ársverðbólgan er komin niður í 2,6% sem er nærri því verðbólgumarkmið Seðlabankans en það er 2,5%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Á vefsíðunni segir að síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,2% verðbólgu á ári (3,6% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október er 365,5 stig og hækkar um 0,05% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 348,0 stig og hækkar um 0,09% frá október.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 18,7% (vísitöluáhrif -0,18%), verð á bensíni og olíum hækkaði um 2,6% (0,14) og kostnaður vegna rafmagns til lýsingar hækkaði um 8,9% (0,11).








Fleiri fréttir

Sjá meira


×