Erlent

Kathleen meiddi sig

Varúð; skríðandi börn.
Varúð; skríðandi börn.

Kviðdómur í Austin í Texas hafði mikla samúð með Kathleen Robertsson sem hafði mátt þola bæði kvalir og vinnutap þegar hún braut á sér öklann. Húsgagnaverslunin þar sem Kathleen öklabrotnaði, harðneitaði að greiða henni nokkrar bætur.

Kviðdómendur voru að vonum hneykslaðir og tóku málstað Kathleen. Þeim þótti hæfilegt að láta húsgagnaverslunina borga henni sex milljónir króna í skaðabætur. Það var jú í húsgagnaversluninni sem barnið var að skríða, sem Kathleen hnaut um. Og hvað með það að það var sonur hennar sjálfrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×