Sjúklingar vilja bjarga deildinni 12. mars 2007 06:45 Iðjuþjálfunin er mikilvægur þáttur í endurhæfingu geðsjúkl-inga en iðjuþjálfunardeild Geðdeildar verður lokað 1. maí verði ekkert að gert. Jórunn Dögg Stefánsdóttir og Helena Kolbeinsdóttir mæta á morgnana í iðjuþjálfun á Geðdeild LSH. MYND/Anton
Sjúklingar og starfsmenn iðjuþjálfunardeildar geðdeildar hafa tekið höndum saman í baráttunni fyrir því að bjarga starfsemi iðjuþjálfunardeildar á Geðdeild LSH en deildinni verður lokað vegna manneklu 1. maí verði ekkert gert. Fólk fæst ekki til starfa vegna lélegra launa á deildinni. „Iðjuþjálfunin hjálpar mér að hafa rútínu á mínu lífi. Ef ég væri ekki í iðjuþjálfun væri ég sofandi inni í herbergi heima. Iðjuþjálfunin verður til þess að ég fer á fætur og út á meðal fólks en ég er mjög lokuð og á það til að einangra mig,“ segir Helena Kolbeinsdóttir, sem hefur sótt iðjuþjálfun á Geðdeild LSH í tvö ár. Helena hefur verið að velta fyrir sér að fara út á vinnumarkaðinn en finnst hún ekki tilbúin til þess alveg strax. „Ef iðjuþjálfunin fellur niður þá veit ég ekki hvað ég geri. Maður fær aðhald í gegnum þessa deild, það er fylgst með og tekið meira tillit til veikindanna þegar maður er kominn út á vinnumarkaðinn,“ segir hún. Jórunn Dögg Stefánsdóttir sækir líka iðjuþjálfunina. „Ég er með geðhvörf og lenti í alvarlegum veikindum 2005. Iðjuþjálfunin hefur hjálpað mér að ná mér upp og efla sjálfstraustið,“ segir Jórunn Dögg. „Hún er mikilvægur þáttur í endurhæfingunni, að hjálpa manni að takast á við lífið og komast aftur út á vinnumarkaðinn.“ Sjúklingar í iðjuþjálfun halda úti bloggsíðu og eru að safna undirskriftum til stuðnings starfsemi deildarinnar. Sylviane Pétursson-Lecoultre, stjórnandi deildarinnar, hefur skrifað æðstu stjórnendum LSH bréf til að gera grein fyrir stöðunni og óska eftir svörum um þjónustuna við Hringbraut og hversu miklu máli það skipti LSH að hafa áfram iðjuþjálfun. „Við höfum auðvitað áhyggjur af þessari stöðu,“ segir Magnús Pétursson, forstjóri LSH. „Þetta er deila um kjör og við fylgjum þeim samningum sem í gildi eru. Við munum auðvitað skoða hvað hægt er að gera en það eru ekki margir kostir í þessari stöðu. Ef fólk fæst ekki til starfa þá er erfitt um vik en auðvitað vonar maður að þetta leysist með einhverju lagi. En það er ekki hægt að brjóta kjarasamninga. Það liggur í augum uppi.“
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Sjá meira