Belgar ætla að slátra Cristiano Ronaldo 22. mars 2007 13:26 MYND/Reuters
Stijn Stijnen, markvörður Brugge og belgíska landsliðsins, segir sína menn muni slátra Cristiano Ronaldo þegar Belgar mæta Portúgölum í landsleik í Lissabon á laugardaginn. George Boateng hjá Middlesbrough lét svipuð orð falla um Ronaldo í viðtali í gær, þar sem hann sagði að stutt væri í að einhver myndi meiða hann alvarlega ef hann hætti ekki að reyna að niðurlægja andstæðinga sína. "Ronaldo á eftir að fara af velli á börum eftir tvær mínútur á laugardaginn. Við munum slátra honum. Hvað annað getum við gert? Portúgal er með leiknari menn innan sinna raða og því verðum við að grípa til örþrifaráða. Ef við reynum að spila eins og þeir - munum við sannarlega tapa," sagði Stijnen. Yfirlýsing hans olli nokkru fjaðrafoki en hann reyndi ekki að draga mikið úr því þegar hann var spurður hvort Belgar ætluðu að fótbrjóta portúgölsku stjörnuna. "Mér finnast orð mín ekki hneykslanleg. Við erum á útivelli og verðum að spila okkar leik. Ég var ekki að meina að við ættum bókstaflega að meiða Ronaldo og koma honum af velli. Við þurfum ekki beinlínis að fótbrjóta hann - en það þýðir ekkert að vera að hlífa löppunum á andstæðingunum," sagði markvörðurinn. Í gær sagði George Boateng hjá Middlesbrough að stutt væri í að einhver myndi meiða Ronaldo ef hann hætti ekki að niðurlægja andstæðinga sína með sýndarmennsku sinni. "Einhver mun meiða Ronaldo illa ef hann hættir ekki þessari sýndarmennsku og þá mun hann verða frá í langan tíma," sagði Boateng í gær.
Mest lesið Magnað heimsmet í hálfu maraþoni Sport Pat Vellner valdi að fara sömu leið og Anníe Mist Sport Ekki sama hvort það er „fuck off“ eða „fuck you“ Fótbolti Armstrong til Man United frá PSG Enski boltinn Sektar eigin leikmenn eftir tapið gegn Víkingum Fótbolti Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Enski boltinn Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi Enski boltinn Dagskráin í dag: Fótbolti, körfubolti og keila Sport Martin í hópnum sem gæti skilað Íslandi á EM Körfubolti Amad líklega frá út tímabilið Enski boltinn Fleiri fréttir Albert kom inn á en fór meiddur af velli Í beinni: Liverpool - Wolves | Kemst toppliðið aftur á sigurbraut? Mbappé syrgir tíu ára aðdáanda Sektar eigin leikmenn eftir tapið gegn Víkingum Ekki sama hvort það er „fuck off“ eða „fuck you“ Armstrong til Man United frá PSG Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi KR lánar Óðinn til ÍR „Mundum hverjir við erum“ Madrídarliðin sáu rautt í jafnteflum Gott gengi Everton undir stjórn Moyes heldur áfram Amad líklega frá út tímabilið Eggert feginn til Freys eftir skref sem reyndist ekki gott Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Marmoush með þrennu í sigri Man City Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Merino sá um að setja pressu á Liverpool Sjáðu mark Emilíu og lætin í kjölfarið Arnar hrósar Sölva í hástert: „Gerði liðið að sínu strax í fyrsta leik.“ Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Leggja til refsingar vegna fótboltakrakkaveiða í Danmörku Mættur í skólann daginn eftir að hafa sett nýtt met í Evrópukeppni Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Nýliðar Aftureldingar skoruðu sex sinnum hjá FH-ingum í Skessunni Brighton skellti Chelsea nýbúnir að slá þá út úr bikarnum Emilía Kiær skoraði í öðrum leiknum í röð David Moyes finnur til með Arne Slot Devine til Blika og má spila í kvöld Orðinn mjög þreyttur á flakkinu Sjá meira