Innlent

Skoða verður óvenju mikla íbúafjölgun í Hafnarfirði í marsmánuði

MYND/GVA
Íbúafjölgun í Hafnarfirði í marsmánuði var sjötíu prósentum meiri en í mánuðunum á undan og munar um 130 manns. Formaður Hags Hafnarfjarðar segir að bæjaryfirvöld verði að skoða betur hvað þarna gerðist. Samtökin ætla að ákveða síðar í dag hvort álverskosningin verður kærð.

Aðeins munaði 88 atkvæðum á milli fylkinga í kosningunni um stækkun álversins í Straumsvík um síðustu helgi. Formaður samtakanna sem studdu stækkun, Ingi B. Rútsson, segir það rangt að orðrómur um kosningasvindl sé frá þeim kominn en tölur um fjölgun íbúa í marsmánuði kalli hins vegar á að þetta verði skoðað nánar.

Tæplega 40 prósentum fleiri hafi skráð búsetu sína í Hafnarfirði í marsmánuði en á undanförnum tólf mánuðum að meðaltali. Ef tekið sé mið af janúar og febrúar þá hafi um 130 fleiri verið skráðir í Hafnarfjörð í mars. Það sé töluvert stökk á milli mánaða og um það bil 70 prósenta fjölgun frá fyrri mánuðum.

Ingi kveðst ekkert vilja fullyrða um hvað sé að baki þessari fjölgun en mikill orðrómur sé í gangi um að menn hafi gagngert flutt heimili sitt vegna kosningarinnar. Ástæða sé til að skoða þetta nánar og sér finnist að bæjaryfirvöld ættu að gera það. Þau hafi aðstöðu til þess en samtökin Hagur Hafnarfjarðar hafi ekki aðgang að persónulegum upplýsingum til að sjá hvað standi þarna að baki.

Hagur Hafnarfjarðar hyggst funda um málið síðar í dag og segir Ingi að þar verði væntanlega tekin ákvörðun um framhaldið.

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri sagði í fréttaviðtölum í fyrradag að ekkert óeðlilegt hefði verið við fjölgun bæjarbúa í aðdraganda kosningarinnar.

Ingi B. Rútsson segir hins vegar ekki hægt að afgreiða þetta án þess að hafa fullgild rök og sér finnist engin rök hafa komið fram í málinu nema þá frekar á þann veg að þetta eigi við einhver rök að styðjast því þessi íbúafjölgun sé meiri heldur en að öllu jöfnu. Það sé alveg ljóst og ástæða sé til að skoða það.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×