Innlent

Verið Vísindagarðar tekur til starfa á Sauðárkróki

Fyrirtækið Verið Vísindagarðar ehf. hefur verið stofnað á Sauðárkróki og fyrr í dag var haldinn opinn kynningarfundur um starfssemina. Eitt af markmiðum Versins er að „stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, efla rannsóknir og námsframboð og auka verðmætasköpun í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu," segir í tilkynningu frá Verinu.

 

Einar K Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, sagði að Verið Vísindagarðar væri farsæl leið til uppbyggingar atvinnulífs á svæðinu, einkum í matvælaiðnaði. Hann sagði að ráðuneytið hafði lagt sig fram um að fjölga sérfræðistörfum hjá stofnunum ráðuneytisins á landsbyggðinni, en þeim hefði fjölgað um 25 síðustu misseri og álíka fjöldi hið minnsta væri fyrirsjáanlegur. "Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hversu mikilvægt er að fjölga atvinnutækifærum fyrir háskólamenntað fólk á landsbyggðinni og sömuleiðis námsmöguleikum. Þetta er liður í því," sagði ráðherra í ræðu sinni.

 

Verið annast rekstur kennslu og rannsóknaraðstöðu í formi vísindagarða í tengslum við Háskólann á Hólum, Matvælarannsóknir Íslands (Matís), FISK Seafood og fleiri aðila. Félagið stefnir að enn frekari uppbyggingu á því sviði með því að skapa aðstöðu og vettvang til aukins samstarfs atvinnulífs, innlendra og erlendra háskóla og rannsóknaraðila. Gísli Svan Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Versins en hann starfaði áður sem útgerðarstjóri hjá FISK Seafood á Sauðárkróki.

 

Vísindagarðarnir eru í um 1.500 fermetra húsnæði að Háeyri 1.

Þar er Háskólinn á Hólum með aðstöðu fyrir kennslu og rannsóknir í fiskeldi, fiskalíffræði, sjávar- og vatnalíffræði. Þá er Matís þar með starfsemi fyrir fyrirtækið Iceprotein sem framleiðir prótein úr fiskafskurði. Vísindagarðar eins og þeir sem hafa verið teknir í notkun á Sauðárkróki hafa verið stofnaðir við fjölmarga háskóla erlendis því reynslan sýnir að slík starfssemi sé öflug leið til að efla byggðir og samfélög með víðtæku háskólastarfi í nánu samstarfi við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Nú þegar munu vera uppi áform um að bæta verulega við núverandi húsnæði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×