Lífið

Dreymir um að reka eigið hótel

Rafn Þórisson fagnaði sigri í fyrstu atrennu á Íslandsmóti barþjóna síðastliðinn sunnudag.
Rafn Þórisson fagnaði sigri í fyrstu atrennu á Íslandsmóti barþjóna síðastliðinn sunnudag. MYND/GVA

Rafn Þórisson fagnaði sigri á Íslandsmóti barþjóna sem haldið var á Hótel Nordica síðastliðið sunnudagskvöld. Alls kepptu þrettán barþjónar en Rafn stóð uppi sem sigurvegari með drykknum Toppi sem samanstendur af gini, ferskjulíkjör, þurru Martini og ástaraldinssírópi. Rafn var leystur út með glæsilegum vinningum en hann verður einnig fulltrúi okkar Íslendinga á heimsmeistaramóti barþjóna sem haldið verður í Taívan í nóvember.

Rafn var á fullu við að búa sig undir sveinspróf í framreiðslu þegar Fréttablaðið náði tali af honum og var að fara yfir sígildu drykkina. „Það er nú reyndar ekki mikið pantað af þeim um þessar mundir en það væri hálf glatað að vera Íslandsmeistari og geta ekki blandað Bloody Mary ef um það væri beðið,“ segir Rafn en þetta var í fyrsta skipti sem hann tekur þátt í þessu móti. „Ég fékk góða hjálp og góða kennslu,“ svarar Íslandsmeistarinn þegar hann er inntur eftir því hver sé lykillinn að titlinum.

Rafn byrjaði snemma að blanda drykki ofan í þyrsta gesti Eddu-hótelanna og fór í kjölfarið að læra til þjóns. Hann vinnur samfara náminu á Hótel Nordica en segir hugann stefna í hótel­rekstur. „Það var eiginlega það sem rak mig út í þetta í fyrstu, draumurinn um að reka mitt eigið hótel,“ segir Rafn og víst er að þessi titill skemmir ekki fyrir. „Þetta er bara fyrsta skrefið af mörgum,“ bætir hann við.

Og þótt Rafn starfi á fínu hóteli þá kemur það fyrir um hverja helgi að honum berst óvenjuleg bón. „Ég var einu sinni beðinn um einn einfaldan Angustora bitter en það er ráðlagt að nota einn dropa af því í drykkina. Ég vísaði bóninni bara á bug enda hefði magi viðkomandi bara farið á hvolf.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.