Innlent

Leitar til Mannréttindadómstóls ef Hæstiréttur kemst að sömu niðurstöðu

MYND/GVA

Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Baugsmanna í gegnum fyrirtækið Nordica, segist ætla leita til Mannréttindadómstóls Evrópu með mál sitt ef Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms frá því í dag. Þar var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aðstoða Baugsmenn við bókhaldsbrot með því að búa til tilhæfulausan kreditreikning.

Jón Gerald sagði í samtali við fréttastofu að hann væri mjög ósáttur við dóminn. Vitnisburður hans sem vitnis fyrr í málinu hefði verið snúið upp á hann og honum gerð réttarstaða sakbornings.

Þá sagði hann koma spánskt fyrir sjónir að hann og Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Baugs, hefðu fengið sama dóm. „ Ég er dæmdur fyrir að hafa aðstoðað við að hafa búið til reikninginn. Ég er ekki sá sem notaði reikninginn eða naut góðs af honum en samt sem áður fáum við sama dóm. Það finnst mér galinn dómur," segir Jón Gerald.

Þá segir hann réttarkerfið á Íslandi einnota en að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. „Ef niðurstaðan verður ekki okkur í hag þá munum við leita til Evrópudómstólsins vegna þess að ég tel að það sé ekki hægt að taka framburð minn sem vitnis og ákæra mig fyrir hann," segir hann og vísar til lagagreina þar að lútandi.

Þá segir han dóm héraðsdóms hafa sýnt að rétt hafi verið að fara af stað með málið. „Alla vega í dag er héraðsdómur búinn að segja að það sem ég sagði frá í upphafi þegar ég kom til Íslands haustið 2002, að Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson væru að misnota Baug sem þá var almenningshlutafélag sér til framdráttar, var rétt. Það er búið að staðfesta það," segir Jón Gerald og segir það sanna að málið eigi sér ekki pólitískar rætur eins og haldið hafi verið fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×