Fréttablaðið, 09. júl. 2007 06:00

Samfylking og Evrópuvextir

mynd
Ögmundur jónasson skrifar.

Sannast sagna kom mér á óvart sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka lánshlutfall lána Íbúðalánasjóðs úr 90% í 80%. Eins og margir vita eru aðrar sperrur fyrir lántöku úr sjóðnum en lánshlutfallið eitt, einnig brunabótamat að viðbættu lóðarverði. Lánið má ekki vera hærra en þessu nemur.

Hátt fasteignaverð og einnig þessi skilyrði valda því að fáir eiga kost á hámarkslánum úr Íbúðalánasjóði. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar nú veldur því hins vegar að þeir sem eru að reyna að festa kaup á ódýrum íbúðum verða fyrir verulegri skerðingu. Kaupandi sem fengið hefur 90% lán frá Íbúðalanasjóði til kaupa á 15 milljón króna íbúð hefur átt rétt á 13,5 milljón króna láni en fær eftir breytinguna 12 milljónir króna.

Skerðingin nemur 1,5 milljónum króna! Félagsmálaráðherra segir að með þessum ráðstöfunum sé verið að senda skilaboð út í þjóðfélagið og að bönkunum beri að taka þau skilaboð alvarlega. Það ætla bankarnir að gera.

Sama dag og félagsmálaráðherra sendi skilaboð sín út í þjóðfélagið var bankaforstjóri nokkur mættur í sjónvarp að fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar og lýsa því jafnframt yfir að bankinn myndi hækka vexti sína fljótlega. Ríkisstjórnin er með þessari aðgerð sinni að takmarka aðgang að því lánsfé sem ber lægstu vextina og jafnframt knýja fram hærri vexti. Þetta er eflaust skýrt með því að lánsfé á hagstæðum kjörum þrýsti íbúðaverði upp. Það er hins vegar mikil einföldun.

Á forsíðu Fréttablaðsins sl. föstudag sagði að húsnæðisverð færi nú snarhækkandi í „álbæjum". Hvers vegna hækkar íbúðaverð meira þar en á Suðureyri og Raufarhöfn? Lánskjörin eru þau sömu á öllum stöðum. Skýringin er þensla og væntingar á markaði, ekki lágir vextir enda eru lægstu vextir á Íslandi okurvextir og ekki á bætandi því fólk er að kikna undan því sem fyrir er. En hvað með lágu „Evrópuvextina" sem Samfylkingunni hefur orði svo tíðrætt um? Eru þeir þá ekki stórhættulegir fyrst skilaboðin eru á þann veg að herða beri á okrinu?

Höfundur er alþingismaður.



Fleiri fréttir

Aðsendar greinar 09. feb. 2010 06:00

Ímyndarvandi vítisáhugafólks

Þeir bræður Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir standa, ásamt öðru áhugafólki um löglega fjárhæ...  

Meira

Aðsendar greinar 09. feb. 2010 06:00

Eldfjallið í Kópavogi

Þríhnúkar nefnast þrír litlir hnúkar, sem standa á hálendisbrúninni skammt vestur af Bláfj...  

Meira

Aðsendar greinar 08. feb. 2010 15:25

Óstjórn á Álftanesi, fullyrðir Þór Saari þingmaður

Mér er málið skylt og þar sem ég er þingmanninum ósammála vil ég svara honum. Ég lagði af ...  

Meira

Aðsendar greinar 08. feb. 2010 06:00

Raunsæi og ábyrgð

Það var öllum ljóst í aðdraganda síðustu kosninga að verkefni nýrrar ríkisstjórnar yrðu ri...  

Meira

Aðsendar greinar 08. feb. 2010 06:00

Ódýrt í sund í Kópavogi

Nokkur umræða hefur spunnist um 120 króna gjald sem tekið verður af 67 ára og eldri í sund...  

Meira

Aðsendar greinar 06. feb. 2010 06:00

Alla leið

Haraldur Haraldsson skrifar um stjórnmál...  

Meira

Aðsendar greinar 06. feb. 2010 06:00

Um spillinguna

Ástráður Haraldsson skrifar um meinta spillingu...  

Meira

Aðsendar greinar 06. feb. 2010 06:00

Góðar fréttir af Icesave

Kristrún Heimisdóttir skrifar um Icesave...  

Meira

Aðsendar greinar 06. feb. 2010 06:00

Líkamsklukkan og skammdegið

Andrés Magnússon skrifar um líkamsklukkuna...  

Meira

Aðsendar greinar 05. feb. 2010 09:36

Vandinn 4 milljarðar en ekki 7

Þessa dagana er mikil umræða um fjárhagsvanda Álftaness og í öllum fréttum er talað um að ...  

Meira

Aðsendar greinar 05. feb. 2010 06:00

Skuldarar þurfa skjól

Fjölmörg íslensk heimili standa nú frammi fyrir miklum erfiðleikum vegna skuldastöðu sinna...  

Meira

Aðsendar greinar 05. feb. 2010 06:00

Þrjár rýtingsstungur á einni viku

Einar K. Guðfinnsson skrifar um ríkisstjórnarsamstarfið...  

Meira

Aðsendar greinar 04. feb. 2010 10:19

Athugasemd við yfirklór Halldórs Halldórssonar

Í gær skrifaði ég pistil visi.is í tilefni af fréttaviðtali við Halldór Halldórsson, forma...  

Meira

Aðsendar greinar 04. feb. 2010 06:00

Tannvernd - börnin sem skila sér ekki

Mikið hefur verið rætt um tannvernd barna á undanförnum misserum. Lýsingar af slæmri tannh...  

Meira

Aðsendar greinar 04. feb. 2010 06:00

Fálkaorðan

Í 1. grein forsetabréfs um fálkaorðuna segir, að fálkaorðuna megi „sæma þá menn innlenda o...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Óstjórn á Álftanesi, fullyrðir Þór Saari þingmaður

Óstjórn á Álftanesi, fullyrðir Þór Saari þingmaður

Mér er málið skylt og þar sem ég er þingmanninum ósammála vil ég svara honum. Ég...


Nýtt á Vísi

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni