Klámráðstefnugestir í partýi feminista 25. júlí 2007 18:54
Nokkrir einstaklingar sem ætluðu að koma hingað á klámráðstefnuna svokölluðu dvöldu á Íslandi fyrir skemmstu, þótt ráðstefnan hefði verið flautuð af. Meðan á dvöl þeirra stóð, heimsóttu þeir hefðbundna ferðamannastaði og skemmtu sér í höfuðborginni. Þeim var alls staðar vel tekið nema í lokuðu teiti feminista, en þangað rötuðu þeir inn fyrir slysni. Nokkrir einstaklingar sem ætluðu að koma hingað á klámráðstefnuna svokölluðu dvöldu á Íslandi fyrir skemmstu, þrátt fyrir að búin væri að flauta ráðstefnuna af. Á meðan á dvöl þeirra stóð, heimsóttu þeir hefðbundna ferðamannastaði og skemmtu sér í höfuðborginni. Þeim var alls staðar vel tekið nema í lokuðu teiti feminista en þangað rötuðu þeir inn fyrir slysni. Fyrirhuguð ráðstefna olli miklum deilum á sínum tíma og fór svo að lokum að hún var blásin af en um 100 manns höfðu ráðgert að koma á ráðstefnuna hvaðan æva að úr heiminum. 8 einstaklingar sem voru búnir að skipuleggja ferð hingað til lands komu samt þar sem þeir fengu ekki flugmiðana sína endurgreidda og voru búir að taka sér frí frá vinnu. Þessir einstaklingar standa meðal annars að fyrirtækinu Sleazydream sem meðal annars dreifir erótísku efni á netinu Eitt kvöldið fór hópurinn niður í miðbæ Reykjavíkur og endaði óvart í hófi feminista. Þar var þeim ekki vel tekið þrátt fyrir að enginn vissi hverjir væru þar á ferð. Scott Hjorleifson, einn gestanna, segir feministana hafa yfirheyrt hópinn og það er hans mat að íslenskir feministar séu ekki upp til hópa gott fólk. Þess utan var hópnum tekið vel hvert sem hann fór en margir könnuðust við Scott og félaga eftir umfjöllun um þá í fjölmiðlum hér á Íslandi í tengslum við ráðstefnuna Scott segir fjölmiðla og feminista hafa farið offari í umræðu sinni um klámráðstefnuna svokölluðu á sínum tíma og komið fram með ásakanir sem væru algjörlega úr lausu lofti gripnar. Verst þótti honum þó ummæli borgarstjóra sem kom fram í fjölmiðlum og sakaði hópinn meðal annars um mansal. Scott telur að hægt sé að fara í meiðyrðamál við borgarstjóra og segir það reynslu sína að fólk sem svona tali sé sjálft ekki með hreina samvisku.
Mest lesið Falsaði bréf frá skólastjóra á kostnað Kennarasambandsins Innlent Stór lögregluaðgerð í Laugardal Innlent Hefði stoppað Magga Mix á punktinum Innlent Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Innlent Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Innlent Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Innlent „Mjög óeðlileg nálgun“ Innlent Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Innlent Palestínski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Innlent „Mun koma í ljós“ hvort kennarar eða Tripical þurfi að endurgreiða Innlent Fleiri fréttir „Börnin útskrifast með bókstaf hjá okkur en tölur í framhaldsskóla“ Stór lögregluaðgerð í Laugardal Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Gæsluvarðhald frönsku konunnar framlengt Málþóf, hætta í umferðinni og umdeildur fáni Birna tekur sæti Áslaugar á þingi Afkomanda Trampe greifa hleypt inn í Alþingishúsið Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Þyrlan sækir slasaðan göngumann í Patreksfjörð „Mun koma í ljós“ hvort kennarar eða Tripical þurfi að endurgreiða Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Fjórtán fengu úthlutað fræðimannadvöl í Jónshúsi Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Sýklalyfjaónæmar bakteríur greindust í íslenskum svínum Þrýst á flugmenn Landhelgisgæslunnar meðan samningar tefjist „Mjög óeðlileg nálgun“ Óvenjulegt málþóf og lítill pólitískur ávinningur Palestínski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Hefði stoppað Magga Mix á punktinum „Það er samkeppni um starfsfólk“ Landspítalaforstjóri fagnar svörtu skýrslunni Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Krefur ráðuneytið svara um föstudagslokun Sjúkratrygginga Vill þyngja refsingar við líkamsárásum Komst ekki í golf í gær en skellti sér í morgun Falsaði bréf frá skólastjóra á kostnað Kennarasambandsins Ekið á barn og maður handtekinn eftir berserksgang Hvetja ráðuneytið til að kynna sér málið og leiðrétta rangfærslur Umræður um veiðigjaldafrumvarpið slá nýtt met Reykjanesbraut verður öll orðin tvöföld fyrir veturinn Sjá meira