Innlent

Íslensk stúlka í róðrarliði Oxford

Margrét Helga er þriðja frá vinstri.
Margrét Helga er þriðja frá vinstri.

Íslensk stúlka, Margrét Helga Ögmundsdóttir doktorsnemi í lífefnafræði við Oxford háskóla hefur verið valin í úrvalslið skólans í róðri, aðeins hálfu ári eftir að hún hóf æfingar. Í tilkynningu frá Oxbridge, hollvinasamtökum Oxford og Cambridge á Íslandi, segir að róðrarlið Oxford háskóla sé eitt hið þekktasta í heimi. Liðið mun yfirleitt vera skipað landsliðsmönnum og Ólympíuförum, en 150 ára hefð er fyrir róðrarkeppni Oxford og Cambridge.

„Innan Oxford háskóla eru 39 garðar sem flestir hafa á að skipa eigin róðrarliðum," segir í tilkynningunni. „Margrét Helga vann sér öruggt sæti í liði síns garðs, Christ Church, fljótlega eftir að hún hóf að æfa róður og eftir gott gengi með liðinu og að lokinni undankeppni var Margrét valin til að æfa með úrvalsliði skólans tæpum sex mánuðum eftir að hún réri fyrst," segir ennfremur. Þá er þess getið að Margrét hafi lítið þekkt til íþróttarinnar áður en hún hóf nám við Oxford að undanskildu því að unnusti hennar hafi róið fyrir Harvard háskóla á sínum tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×