Hryðjuverk eru ekki lengur það sem bandaríski hagfræðingar óttast mest í augnablikinu. Þeir telja efnalitla einstaklinga með litla greiðslugetu sem lenda í vanskilum með afborganir af lánum sínum geta skaðað efnahagslífið meira.
Þetta er niðurstaða könnunar sem Samtök bandaríska hagfræðinga kynnti á mánudag. Þar lentu efnaminni einstaklingar í efsta sæti yfir þá mestu ógn sem efnahagslífi Bandaríkjanna stafar hætta af til skemmri tíma litið.
Í könnuninni kemur fram að minnkandi greiðslugeta fólks og aukin vanskil á fasteignalánamarkaði eru ofarlega í hugum 32 prósenta af þeim 258 hagfræðingum samtakanna sem þátt tóku í könnuninni.
Einungis 20 prósent aðspurðra töldu hryðjuverkaógn geta valdið meiri skaða. Þetta er 15 prósentustigum minna en í sambærilegri könnun samtakanna í mars síðastliðnum. Á eftir efnalitlum einstaklingum og hryðjuverkaógn koma atriði á borð við verðbólgu, verðhækkun á eldsneyti og útgjöld hins opinbera.
Fréttastofan Associated Press hefur eftir aðalhagfræðingi hjá LaSalle-bankanum í Bandaríkjunum að niðursveiflan á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, sem eigi sér rætur í auknum vanskilum á fasteignalánum vegna lítillar greiðslugetu einstaklinga með lélegt lánshæfi, hafi augljóslega fengið fólk til að beina sjónum að öðrum þáttum en hryðjuverkaógn.