Enginn ráðherra nema Geir á dýrari bíl en útvarpsstjóri 29. ágúst 2007 00:01 Mynd/ Stöð 2
Páll Magnússon útvarpsstjóri er á dýrari og flottari bíl en allir ráðherrar í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar fyrir utan Geir H. Haarde forsætisráðherra. Páll ekur um á glæsijeppanum Audi Q7 sem kostar rúmar níu milljónir. Mánaðarleg afborgun Ríkisútvarpsins af bílnum er 202 þúsund krónur. Geir Haarde ekur um á BMW 730 sem kostar nýr um 9,5 milljónir en hann er orðinn þriggja ára gamall. Reglur um kaup ráðuneyta á bílum fyrir ráðherra eru nokkuð skýrar. Böðvar Jónsson, aðastoðarmaður fjármálaráðherra, sagði í samtali við Vísi að ráðuneytin fái hvert um sig fimm milljónir til bílakaupa en síðan sé þeim í sjálfvald sett hversu miklu í viðbót þau eyða af rekstrarfé ráðuneytisins í bíl fyrir ráðherra. Fyrir utan Geir er Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra á dýrasta bílnum en Lexus-bifreið hans kostar ný rétt tæpar átta milljónir. Til samanburðar má geta þess að bankastjórar Seðlabankans fá að kaupa bifreið fyrir fimm milljónir. Davíð Oddsson fékk sér einmitt Subaru Tribeca B9 þegar hann tók við embætti en sá bíll kostaði þá rétt um 4,5 milljónir. Ekkert þak virðist hins vegar vera á kostnaði við bílakaup útvarpsstjóra. Ómar Benediktsson, stjórnarformaður RÚV ohf., viðurkenndi í samtali við Vísi á dögunum að það væri álitamál hvort útvarpsstjóri ætti að aka um á jafn fínum bíl og raun ber vitni. Geir H Haarde forsætisráðherra ekur um á BMW 730 sem kostar nýr um 9,5 milljónir.Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra ekur um á Lexus 430h sem kostar 7,9 milljónir.Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ekur um BMW X5 sem kostar nýr 7,5 milljónir.Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra ekur um á umhverfisvænum Lexus-jeppa sem kostar rétt um sjö milljónir.Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ekur um á Benz-jeppa sem kostar 6,7 milljónir. Hann vill hins vegar gjarnan losna við hann.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ekur um á Audi A6 sem kostar nýr 6,2 milljónir. Hennar bíll er hins vegar árgerð 2004 og kostar 4,5 milljónir, helmingi minna en bíll útvarpsstjóra.Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra geysist um á díselknúnum BMW X3 sem kostar tæplega 6,1 milljón.Árni Mathiesen fjármálaráðherra fer ferða sinna í BMW 530 sem kostar rétt rúmlega 6 milljónir.Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ekur um á Toyota Landcrusier sem kostar tæplega sex milljónir.Kristján L. Möller samgönguráðherra keyrir á Toyota Landcruiser sem kostar um 5,9 milljónir.Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra fer um bæinn í Benz frá árinu 2004 sem kostar nýr rétt rúmar 4,5 milljónir.Davíð Oddsson Seðlabankastjóri fékk sér Subaru Tribeca sem kostar nú rétt um 5 milljónir króna.Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ekur um á ódýrasta ráðherrabílnum sem er Honda CRV. Hann kostar nýr rúmar 3,9 milljónir.Mynd/ Visir.is
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Strandveiðisjómaður lést Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Sjá meira