Innlent

Afmælisgjafirnar brunnu upp

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Græddur er geymdur eyrir. Eða ekki. Afmælisgjafir sem lagðar voru af hugulsemi og fyrirhyggju inn á sparisjóðsbók hjá ungum pilti á sjöunda áratugnum, allt frá því hann var eins árs og fram að fermingu, urðu að engu á nokkrum áratugum. Á svokölluðum vöxtum.

Í Bítinu á Bylgjunni var fyrir skömmu viðtal við Stefán Halldórsson sem fékk ársgamall sparisjóðsbók í Búnaðarbankanum. Þetta var árið 1960. Næstu tólf árin voru lagðar inn á bókina afmælisgjafir og þessháttar, síðast árið 1972. Þá voru 2759 krónur og 80 aurar inni á bókinni.

Bókin fannst svo fyrir tilviljun nýverið þegar móðir Stefáns var að róta í kössum uppi á háalofti. Stefáni lék forvitni á að vita hversu há upphæðin væri í dag en þá hafði hún legið óhreyfð á vöxtum í 35 ár og gæti því verið orðin drjúgur skildingur. Óekki.

Nú á Stefán heilar 939 krónur inni hjá Kaupþingi. Tölurnar segja kannski lítið - en verðsamanburður sýnir að í stað þess að vaxa, eins og maður ætlast til af bankainnistæðum - hefur upphæðin rýrnað. Verulega.

Kíkjum á nokkrar nauðsynjar. Fyrir 35 árum gastu keypt 178 lítra af mjólk fyrir 2759 kr. Í dag færðu 13 lítra fyrir 939 kr.

Sjötíu og tvö gastu farið 317 sinnum í strætó á afsláttarmiða. Í dag kemstu fjórar afsláttarferðir með strætó.

Þá gastu dælt 172 lítrum af bensíni á bílinn. Miðað við algengt verð á bensíni í dag - færðu 7 lítra.

Þá fékkstu 3,15 lítra af brennivíni fyrir upphæðina. Nú færðu tæpan fjórðung úr lítra.

Og þá er það sígarettupakkinn. Þá fékkstu 39 pakka, nú færðu um það bil einn og hálfan pakka af winston.

Stefán sagði í samtali við fréttastofu sérstakt að í ljósi lúxusferða og ofurlauna manna sem þéna jafnmikið á ári og verkamenn alla starfsævina - að þeir sem lögðu grunninn að þessum bönkum - fái svona ávöxtun. Svona ávöxtun er bara grín, sagði Stefán. Það má með sanni segja því miðað við sígarettuvísitöluna hefur upphæðin rýrnað um 96% - en 99% ef miðað er við afsláttarferð í strætó.

 

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×