Innlent

Öflugasta skólastjórn Íslands

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Margrét Pála Ólafsdóttir er upphafsmaður Hjallastefnunnar.
Margrét Pála Ólafsdóttir er upphafsmaður Hjallastefnunnar.

Í stjórn Hjallastefnunnar sem rekur átta leikskóla víðsvegar á Íslandi situr einvalalið. Flest þeirra sem skipa stjórnina hafa verið áberandi í íslensku atvinnulífi. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu. Formaður stjórnarinnar er Helga Sverrisdóttir, eiginkona Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis.

Auk hennar sitja í stjórn þau Inga Lind Karlsdóttir dagskrárgerðarkona á Stöð 2, Halla Tómasdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár og Margrét Pála Ólafsdóttir, sem er jafnframt framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar og frumkvöðull að stofnun félagsins. Í varastjórn sitja Hafþór Hafsteinsson fyrrverandi forstjóri Avion Aircraft Trading og Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður hjá Brimi.

„Ég sit í stjórn Hjallastefnunnar vegna þess að ég hef óbilandi trú á Margréti Pálu Ólafsdóttur og því sem hún stendur fyrir," segir Inga Lind. Hún segir einnig að það sé áhugavert að fá að taka þátt í þróun sjálfstæðra skóla á uppgangstímum þeirra. Inga Lind segist telja að það hafi sýnt sig að betur gangi að manna sjálfstæðu skólana en þá opinberu. „Sjálfstæðir skóla hafa meiri sveigjanleika í rekstri og geta nýtt það í samningum við starfsfólk sitt," segir hún. Inga Lind telur eðlilegt að opinberir leikskólar verði reknir áfram. Það sé hins vegar gott að geta boðið upp á val með fjölbreyttu rekstrarformi.

Á vefsíðu Hjallastefnunnar kemur fram að félagið reki nú átta leikskóla á grundvelli þjónustusamninga við sveitarfélög. Þetta eru leikskólinn Hjalli í Hafnarfirði, Ás í Garðabæ, Hólmasól á Akureyri, Hraunborg á Bifröst, Ránargrund í Garðabæ, Völlur í Reykjanesbæ, Laufásborg í Reykjavík og Akur í Reykjanesbæ. Að auki reki félagið einn einkaskóla sem starfi bæði á leik- og grunnskólastigi en það er Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ. Hann hefur jafnframt útibú í Hafnarfirði og á háskólasvæði Keilis í Reykjanesbæ.

Helga Sverrisdóttir formaður
Inga Lind Karlsdóttir sjónvarpskona
Halla Tómasdóttir fyrrv. framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá
Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims
Hafþór Hafsteinsson forstjóri Avion Aircraft Trading
Margrét Pála Ólafsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×