Enski boltinn

Beckham fékk hjartaáfall

Faðir Davids Beckham er á sjúkrahúsi
Faðir Davids Beckham er á sjúkrahúsi NordicPhotos/GettyImages

David Beckham liggur nú á sjúkrahúsi í London eftir að hafa fengið hjartaáfall í gærkvöldi. Hér er um að ræða David Edward Beckham, faðir fyrrum fyrirliða enska landsliðsins og leikmanns LA Galaxy.

Ted Beckham, eins og hann er yfirleitt kallaður, er sagður við sæmilega heilsu og sonur hans er nú á leið til Lundúna frá Bandaríkjunum til að vera með föður sínum. Victoria kona hans mun ekki hafa komist til Lundúna enn sem komið er því hún er að vinna í Japan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×