Innlent

Sýknaður af utanvegaakstri við smölun

Héraðsdómur Norðurlands eystra sektaði í dag karlmann um áttatíu þúsund krónur fyrir að aka á óskráðu vélhjóli við smölun. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um utanvegarakstur.

Lögregla hafði afskipti af manninum í fyrra þar sem hann var í hlutverki gangnaforingja á Mývatnsöræfum. Þegar lögregla hugðist mæla ökuhraðann ók maðurinn út af veginum. Ók hann hjólinu um 70 metra utan vega og merktra slóða áður en lögregla hafði tal af honum.

Maðurinn viðurkenndi að vera á óskráðu hjóli en neitaði hins vegar að hafa valdið landspjöllum. Bann er við slíku samkvæmt lögum en undantekningar veittar meðal annars vegna starfa manna við landbúnað. Segir í dómnum að meðan ekki verður öðruvísi kveðið á um líti dómari svo á að smalamennska falli undir störf við landbúnað.

Hægt hefði verið að nota hesta en notkun þeirra sé alls ekki hættulaus, jafnvel vönum mönnum og ekki er borðleggjandi að engin náttúruspjöll leiði af traðki þeirra. „Þá er við margvíslegar aðstæður miklum mun hentugra að smala fé á vélknúnum fararskjótum, sem fram yfir hina lifandi hafa bæði hraða og úthald, auk þess sem kenjar og hrekkir hinna vélknúnu eru miklum mun útreiknanlegri og viðráðanlegri en hinna lifandi," segir í dómnum.

„Það er mat dómara að miklu skynsamlegra væri, með tilliti til hættu á landspjöllum, að brúka fjórhjól við smalamennsku en tæki á borð við það sem ákærði notaði, með skírskotun til þeirrar staðreyndar að þungi tækis og smala dreifist þá á fjögur hjól en ekki tvö. Hins vegar hefur ekki verið hnekkt þeirri staðhæfingu ákærða að hann hafi engum spjöllum valdið á landi með notkun þess ökutækis sem hér um ræðir, en í því felst að hann hefur virt skilyrði ákvæðisins um að hafa sérstaka aðgát við aksturinn,“ segir enn fremur í dómnum.

Var maðurinn því sýknaður af ákæru um utanvegaakstur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×