Strætó harmar atburðinn í leið 13 26. október 2007 11:15 MYND/VG
Framkvæmdastjóri Strætó bs, Reynir Jónsson, segir að fyrirtækið harmi þá atburði sem áttu sér stað í leið 13 á dögunum þegar vagnstjóri brást ókvæða við beiðnum konu sem bað hann um að fara sér hægar. Vagnstjórarnir sem um ræðir hafa viðurkennt mistök sín. Þá er því beint til konunnar sem hlut átti að máli að hún gefi sig fram við Strætó svo hægt sé að biðja hana persónulega afsökunar. Þá kemur fram í tilkynningunni að við rannsókn á ökulagssíritum vagnsins hafi komið í ljós að vagninn hafi ekki farið yfir leyfilegan hámarkshraða á þeim tíma sem um ræðir. Tilkynningin frá Strætó bs.er hér fyrir neðan í heild sinni. „Í kjölfar fréttar sem birtist á vísi.is þann 24. október sl. varðandi uppákomu í leið 13 viljum við láta eftirfarandi frá okkur fara: Við viljum byrja á því að biðja alla hlutaðeigandi farþega afsökunar á þessu og hörmum að þessi atburður hafi gerst - sér í lagi þá konu sem um ræðir. Myndum við gjarnan vilja að hún gæfi sig fram við okkur svo við getum komið á framfæri við hana afsökun okkar. Við höfum jafnframt rætt við hlutaðeigandi vagnstjóra og viðurkenna þeir mistök í málinu og vilja einnig biðja hlutaðeigandi farþega afsökunar á framferði sínu. Við höfum yfirfarið ökulagssírita vagnsins á ferð hans á þessum tíma sem um ræðir og viljum taka það skýrt fram að hann fór ekki yfir löglegan hámarkshraða né braut á þeim viðmiðum sem við höfum sett um ökulag. Umræddur biðtími sem vitnað er til í fréttinni var innan við 60 sekúndur skv. ökulagsrita. Vert er að benda hinum almenna borgara á að erfitt getur verið að sneiða framhjá þeim fjölmörgu hraðahindrunum - hvort heldur er í formi upphækkana eða þrenginga - sem eru á þessari leið. Þessar hraðahindranir verða því miður oft til þess að hjól vagnanna vilja fara yfir þessa kanta með tilheyrandi höggum og titringi." Fréttina af uppákomunni má lesa hér.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira