Innlent

Dregið verði úr fjölpósti

MYND/Rósa

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hyggst setja á fót starfshóp til þess að finna leiðir til þess að draga úr fjölpósti í landinu. Þetta kom fram í fyrispurnartíma á Alþingi.

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Þórunni um málið og benti á að árlega bærust nú 176 kíló af pappír inn á hvert heimili í landinu en þrír fjórðu þeirrar þyngdar eru dagblöð og fjórðungur fjölpóstur. Sagði hún umfang fjölpósts hafa aukist um 76 prósent frá árinu 2003.

Það væri í raun ótrúlega mikið af fjölpósti sem gubbaðist inn um lúgurnar hjá fólki og það þyrfti svo að borga fyrir förgun hans í gegnum skattana. Spurði hún ráðherra hvenær von væri á aðgerðum til þess að auka ábyrgð þeirra sem dreifa fjölpósti á kostnaði við förgunina.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði aukinguna á fjölpósti gríðarlega. Mikilvægt væri að auka ábyrgð þeirra sem framleiddu og flyttu inn blöð, tímarit og bækur og því hefði hún ákveðið að fela starfshópi að skoða hvort hægt væri að innleiða framleiðendaábyrgð eða setja á sérstakt úrvinnslugjald vegna þessa. Nefndin skilaði vonandi tillögum í vetur.

Siv benti einnig á í ræðu sinni að Íslandspóstur væri hættur að bjóða upp á gula límmiða fyrir póstkassa þar sem fjölpóstur væri afþakkaður. Þórunn sagðist hafa spurst fyrir um málið og meðal annars fengið þau svör að ekki væri næg lagastoð fyrir því að prenta slíka miða. Furðaði hún sig á því að það þyrfti að vera sérstök löggjöf um að fólk gæti afþakkað póst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×