Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald í nauðgunarmáli 14. nóvember 2007 16:44 MYND/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag að tveir Litháar sem grunaðir eru um að hafa nauðgað konu í í húsasundi í miðbæ Reykjavíkur um helgina skuli sæta gæsluvarðhaldi til mánudagsins 19. nóvember. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður úrskurðað þá í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að konan hafi lagt fram kæru á hendur mönnunum á sunnudagsmorgun eftir að hún leitaði til neyðarmóttöku Landspítalans vegna nauðgana. Var konan með augljósa áverka. Konan lýsir hrottafenginni árás mannanna og er rétt að vara viðkvæma við því sem hér á eftir kemur. Konan lýsir því svo að hún hafi verið stödd á skemmtistað í bænum og þar hafi tveir menn komið til hennar og hafi annar þeirra farið að ræða við hana á ensku. Eftir að skemmtistaðnum hafi verið lokað hafi mennirnir gengið með henni upp Laugaveginn. Þau hafi gengið inn í húsasund við gatnamót Laugarvegs og Vitastígs en þar hafi mennirnir ráðist á hana með ofbeldi. Hafi annar þeirra, sem hún nefnir þann stærri, hrint henni upp á húdd bifreiðar sem í húsasundinu var þannig að hún féll við. Hann hafi haldið henni upp við bifreiðina og byrjað að slá hana í andlitið, rífa í hár hennar og sveigja höfuð hennar aftur. Á meðan henni var haldið hafi annar þeirra tekið niður um hana buxurnar. Hún hafi barist á móti af öllu afli en mennirnir hafi náð að toga hana niður í mölina. Þar hafi þeir togað buxur hennar niður að ökklum og rifið upp um hana peysu, bol og brjósthaldara. Hafi sá stærri reynt að setja getnaðarlim sinn í leggöng hennar og kvaðst hún muna eftir miklum sársauka. Hinn maðurinn hafi einnig reynt að setja getnaðarlim sinn í leggöng hennar og hafi sá stærri haldið henni fastri með hálstaki á meðan og reynt að troða lim sínum í munn hennar. Sá hafði síðan farið klofvega yfir hana og slegið limnum í andlitið á henni þar til hún hafi neyðst til þess opna munninn. Hann hafi þá troðið honum upp í munn hennar. Hinn maðurinn hafi að þessu búnu sest öfugur yfir hana og sett afturendann upp við andlit hennar. Hann hafi sett lim sinn í munn hennar og sagt við hana á ensku að henni yrði sleppt eftir þrjár mínútur ef hún yrði samvinnuþýð. Kvað hana minna að sá maður hafi fengið sáðlát í munn hennar á meðan höfði hennar var haldið föstu. Mennirnir hafi að þessu loknu sleppt henni lausri. Tók hún fram að þeir hafi hlegið að henni bæði á meðan á þessu stóð og á eftir. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild var konan með rispur á baki og víða á líkamanum eins og eftir möl eða sand. Sandur og laufblöð hafi verið í hári hennar og fatnaði. Þá hafi hún verið með áverka á kynfærum og er vísað um það til vottorðs neyðarmóttöku. Út frá öryggismyndavélum á skemmtistaðnum var hægt að hafa uppi á mönnunum og voru þrír menn handteknir á sunnudag. Einum þeirra var sleppt þegar ljóst hafi verið að hann tengdist ekki málinu. Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi neituðu að hafa haft kynmök við konuna og hafa borið fyrir sig minnisleysi um atburði.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Sjá meira