Lífið

Bakkaði á þúsund sinnum ódýrari bíl

Karl Wernersson á tryggingafélagið Sjóvá og gat reitt sig á skilvirkni sinna manna þegar kom að því að greiða gyllta Subaru-inn út.
Karl Wernersson á tryggingafélagið Sjóvá og gat reitt sig á skilvirkni sinna manna þegar kom að því að greiða gyllta Subaru-inn út.

Milljarðamæringurinn Karl Wernersson varð fyrir því óláni að aka á átján ára gamlan gylltan Subaru þegar hann var bakka út úr innkeyrslunni á húsi sínu við Engihlíð. Bíll Karls er svartur Benz jeppi af flottari gerðinni sem kostar um 20 milljónir. Verðmæti Subaru-sins er hins vegar um 20 þúsund krónur.

Eigandi Subaru-bifreiðarinnar sagði í samtali við Vísi að bíllinn hefði haft mikið tilfinningalegt gildi en ekki hefði verið annað hægt en að borga bílinn út þar sem viðgerð hefði verið mun dýrari. Hann sagði Karl hafa verið hinn almennilegasta og meðal annars boðið afnot af Benz-jeppanum sem er þúsund sinnum dýrari en gamli gyllti Subaru-inn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×