Innlent

Keyrði fram af flugbraut

Andri Ólafsson skrifar
Það sér á bílnum eftir óhappið.
Það sér á bílnum eftir óhappið. Mynd/ Óskar P. Friðriksson

Karlmaður á þrítugsaldri var heppinn að sleppa með lítil meiðsl þegar hann ók bíl sínum tíu metra fram af flugbrautinni í Vestmannaeyjum í nótt.

Svo virðist sem maðurinn hafi komið bíl sínum í gegnum hlið við flugbrautina. Þar fékk hann svo útrás fyrir adrenalínþörfina með þvi að aka upp og niður brautina á miklum hraða.

Þegar hann kom að öðrum endanum náði hann hins vegar ekki að bremsa í tæka tíð og fór því eina tíu metra niður hlíð sem er við enda brautarinnar. Bíll mannsins er töluvert skemmdur en sjálfur hlaut hann ekki alvarleg meiðsli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×