Innlent

Leiðrétting vegna fréttar um ferðalag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar

Einkaþotan sem Jón Ásgeir ferðast á þessa dagana. Eins og sjá má er merki 101 hótels á stéli vélarinnar en hótelið er í eigu eiginkonu Jóns Ásgeirs. Síðustu þrír einkennisstafir vélarinnar eru einnig upphafsstafir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Einkaþotan sem Jón Ásgeir ferðast á þessa dagana. Eins og sjá má er merki 101 hótels á stéli vélarinnar en hótelið er í eigu eiginkonu Jóns Ásgeirs. Síðustu þrír einkennisstafir vélarinnar eru einnig upphafsstafir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Vegna fréttar sem birtist 2. janúar á Vísi og yfirlýsingar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem birtist 4. janúar um ferðalag hans og Ingibjargar Pálmadóttur ásamt vinafólki þeirra, vill ritstjórn Vísis koma með leiðréttingu.

Vél sú sem Jón Ásgeir Jóhannesson flaug í burtu frá Íslandi á nýársdag er ekki í eigu hans heldur BG Aviation Ltd sem er eftir því sem Vísis kemst næst dótturfélag Baugs Group þar sem Jón Ásgeir og fjölskylda hans fara með ráðandi hlut og Jón Ásgeir er stjórnarformaður. Ferð vélarinnar var ekki heitið til Jamaíka heldur til Bangor í Maine-fylki í Bandaríkjunum. Ekki er vitað hvert farið var frá Bangor en þess má geta að hún var á Palm Beach-flugvelli í Flórída í gær. Verð vélarinnar er einnig nær 1,5 milljarði en tveimur.

Snekkjan sem Jón Ásgeir, Ingibjörg og vinafólk þeirra hugðust dvelja í er ekki ný heldur var hún afhent í ágúst á síðasta ári. Jón Ásgeir hefur dvalið í skútunni í nokkur skipti og var því ekki um jómfrúarferð hennar að ræða. Verð skútunnar er einng nær milljarði en tveimur.

Í athugasemd ritstjóra Vísis sem fylgdi með yfirlýsingu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar voru rangfærslur harmaðar. Eins og sjá má í leiðréttingunni er fyrirsögn fréttarinnar röng og önnur atriði ónákvæm. Ritstjórn Vísis er mjög í mun um að fréttir sem birtast á Vísi séu réttar og ef svo er ekki er beðist afsökunar. Skiptir þá engu máli hvaða einstaklingur á í hlut, hvort heldur það er Jón Ásgeir Jóhannesson eða einhver annar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×