Lífið

Mýrin endurgerð í Hollywood

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Baltasar Kormákur og Arnaldur Indriðason.
Baltasar Kormákur og Arnaldur Indriðason. MYND/Frétt
Kvikmyndaframleiðandinn Overtures hefur tryggt sér réttinn að því að endurgera mynd Baltasars Kormáks, Mýrina. Baltasar mun taka þátt í gerð myndarinnar, en fyrirtækið fór fram á að hann yrði einn framleiðanda. Overtures er með dreifingarsamning við Paramount, sem er eitt stærsta kvikmyndafyrirtækið og dreifingaraðilinn í Hollywood.

Þá sem þyrstir í að sjá hvaða stórleikari tekur að sér vandasamt hlutverk hins sviðjakjammsandi Erlends, gætu þó þurft að bíða örlítið. Baltasar segir að meðgöngutími slíkrar myndar geti verið allt frá einum til tveimur árum upp í tíu. ,,Ég man ekki nákvæmlega hvað rétturinn sem við sömdum um er lengi, en minnir að það séu 4-5 ár," segir Baltasar, en það er þá sá tími sem framleiðslufyrirtækið hefur til að koma myndinni á koppinn.

Verkfall handritshöfunda í Hollywood hefur þó áhrif á þetta eins og annað, en Overtures heldur að sér höndum á meðan á því stendur, enda erfitt að endurgera handrit án handritshöfunda. Þeir hafa þó lagt fram lista með þeim handritshöfundum sem þeir vilja helst sjá í vinna að myndinni og segir Baltasar að á honum hafi enginn verið nema stærstu nöfnin í bransanum. „Þeir ætla sér stóra hluti með þetta, en maður veit auðvitað aldrei hvar þetta endar," segir Baltasar.

Mýrin, sem er gerð eftir samnefndri skáldsögu Arnalds Indriðasonar, hefur gengið gríðarvel frá því hún var frumsýnd. Hún vann aðalverðlaunin á Karlovy Vary hátíðinni, og varð þar með fyrst íslenskra mynda til að vinna aðalverðalun á A-kvikmyndahátíð svokallaðri. En það eru stærstu hátíðirnar, á borð við þær í Cannes, Berlín, og Toronto kallaðar. Myndin hefur meðal annars verið seld til Bandaríkjanna, Bretlands, Þýskalands, Frakklands og allra Skandinavíulandanna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×