Lífið

Sjónvarpsstöðin Sýn kvödd

Ari Edwald, forstjóri 365.
Ari Edwald, forstjóri 365. Mynd/ Stöð 2.

Frá og með deginum í dag munu allar sjónvarpsstöðvar 365 miðla verða kenndar við Stöð 2 - að viðbættu frekara auðkenni. Sýn hefur fengið nafnið Stöð 2 Sport. Sýn 2 er Stöð 2 Sport 2. Sirkus heitir hér Stöð 2 Extra. Fjölvarpið er Stöð 2 Fjölvarp og Stöð 2 Bíó verður áfram Stöð 2 Bíó. Um leið fær M12 tryggðarklúbburinn betra og gegnsærra nafn - Stöð 2 Vild.

„Mér líst gríðarlega vel á þessar breytingar og tel að við fáum aukinn slagkraft með því að skýra og einfalda okkar vörumerki. Við höfum verið að því. Við vorum með fleiri nöfn," segir Ari. Hann bendir á að nú séu allir miðlar 365 utan sjónvarps orðnir frímiðlar og bendir á útvarpið, vef- og prentmiðlana. Hins vegar sé allt sjónvarpið orðið áskrifasjónvarp. „Það fer því vel á því að ljúka þessari yfirferð með því að einfalda og skerpa á elsta og sterkasta vörumerkinu okkar, sem er Stöð 2," segir Ari.

Í fréttatilkynningu frá 365 segir að beinar útsendingar frá Formúlu 1 kappakstrinum hefjist í kvöld á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport. Þá verði beinar útsendingar frá æfingum í Ástralíu en um helgina verði svo sýnt beint á sömu stöð frá öllu því sem tengist þessari fyrstu keppni í nýrri mótaröð. Því til viðbótar verði boðið uppá mun meiri og ítarlegri umfjöllun um keppnina, bæði fyrir og eftir hana. Liður í því sé upphitunarþátturinn F1: Við rásmarkið sem verður á fimmtudögum og uppgjörsþátturinn F1: Við endamarkið á sunnudögum.

Ari segir að sér lítist vel á formúluna. „Það er allt opið og margir sem koma til álita að blanda sér í toppbaráttuna. Eins og áhorfendur Stöð 2 Sport hafa þegar séð er þáttagerðin að fara af stað með miklu vandaðri hætti en hefur þekkst. Það verður því betur gert við áhorfendur en áður hefur þekkst," segir Ari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.