Innlent

Skoskir bændur hægðu á netsambandi frá landinu

Vorverk skoskra bænda orsökuðu bilun til á ljósleiðara sem olli töfum á netumferð til og frá landinu um FARICE-1 sæstrenginn frá Skotlandi. Í tilkynningu frá FARICE segir að girðingarvinna bændanna hafi orsakað bilunina sem stóð í rúman sólarhring.

 

Hún hafði meðal annars þau áhrif að öll netumferð frá Íslandi og Færeyjum var hægvirkari en ella.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×