Innlent

Einn handtekinn eftir róstur við Miklabraut

Lögreglan var kölluð út á áttunda tímanum í kvöld eftir að tilkynnt hafi verið um átök í íbúðarhúsnæði á Miklubraut. Þar var einn karlmaður handtekinn eftir að hafa verið hlaupinn af lögreglumönnum. Annar var færður á slysadeild þar sem gert var að meiðslum hans.

Báðir mennirnir eru samkvæmt heimildum Vísis Litháar en ekki er talið að þeir tengist fjöldaslagsmálum sem brutust út í Keilufelli fyrr í dag á milli landa þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×