Innlent

Rán í Kringlunni

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Unglingspiltur rændi fartölvu í verslun BT í Kringlunni fyrir rúmri klukkustundu með því að klippa með skærum á öryggislínu er tölvan var fest með. Ógnaði pilturinn starfsfólki með skærunum er það gerði tilraun til að hefta för hans og hvarf að því loknu á braut í hópi annarra pilta. Meintur ræningi var handtekinn ásamt þremur öðrum fyrir 20 mínútum í hverfi austan við Kringluna og hafði hann tölvuna og skærin í fórum sínum. Eru þeir nú í yfirheyrslu hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×