Lífið

Eyrún Magnúsdóttir ólétt

Sjónvarpskonan fyrrverandi Eyrún Magnúsdóttir á von á barni. Hún staðfesti þetta í samtali við Vísi og sagði erfingjans að vænta í október. Þetta er fyrsta barn Eyrúnar og unnusta hennar, Einars Árnasonar myndatökumanns á Stöð 2. Eyrún er Íslendingum að góðu kunn eftir störf sín í Kastljósinu, þar sem hún starfaði í tvö ár. Hún hætti þar síðla árs 2006 og hefur síðan þá unnið við ráðgjafastörf og almannatengsl.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×