Viðskipti innlent

Kaupþing tapar á þorski

Höfuðstöðvar Kaupþings
Höfuðstöðvar Kaupþings

Fyrsta tilraunin til að rækta lífrænan þorsk er fyrir bí eftir að fyrirtækið No Catch á Hjaltlandseyjum varð gjaldþrota. Dótturfélag Kaupþings fjármagnaði verkefnið að hluta og tapaði rúmum tveimur milljörðum króna á því.

Miklar vonir voru bundnar við verkefnið en No Catch var fyrsta lífræna þorskeldið sem hleypt var af stokkunum. Tilraunin var svar umhverfisverndarsinna gegn offveiði á þorski sem sögðu að þorskeldið markaði vatnaskil í sjálfbærum sjávarútvegi.

Miklu var kostað í markaðssetningu á afurðinni og voru stórstjörnur á borð við Demi Moore og Gordon Ramsey fengnar til að votta gæði hennar.

En nú, aðeins þremur árum eftir að No Catch hóf rekstur er ævintýrið úti og það eina sem situr eftir eru skuldir upp á 40 milljónir punda, rúmlega sex milljarða íslenskra króna.

Nú starfa um 70 manns við þorskeldið á Hjaltlandseyjum en um 3400 tonn af þorski eru eftir í kvíunum sem fara á markað fyrir lítinn pening næstu mánuði. Eftir það ríkir óvissa um framtíð þorskeldis á Hjaltlandseyjum.

Í breskum fjölmiðlum segir að dótturfélag Kaupþings í Bretlandi, Kaupþing Singer og Friedlander, hafi tapað um 15 milljónum punda á verkefninu, eða um 2,3 milljörðum króna. Haft er eftir skiptaráðenda bankans að framleiðslukostnaður hafi farið úr böndunum og að stjórnedur fyrirtækisins hafi gert mörg mistök í rekstrinum.

Segir hann jafnframt að fyrirtækið hafi ekki átt sér viðreisnar von. Annar lykilfjárfestir, Milestone Captial sem er alls óskylt hinu íslenska Milestone, er sagt hafa tapað 25 milljónum punda. Hluti tapsins gæti þó gengið til baka því norskir fjárfestar hafa sýnt áhuga á að kaupa eignir fyrirtækisins.

Forsvarsmenn No Catch eru þó ekki sáttir við niðurstöðu mála. Segja þeir að á þessu ári hafi áætlanir gert ráð fyrir að reksturinn næði jafnvægi og ekki væri langt í að það skilaði hagnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×