Enski boltinn

Móðir Lampards er látin

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lampard á æfingu í vikunni.
Lampard á æfingu í vikunni.

Móðir Frank Lampards, knattspyrnumanns í Chelsea, er látin eftir erfið veikindi. Hún var 58 ára gömul og hafði barist gegn lungnasjúkdómi sem á endanum dró hana til dauða.

Lampard hefur átt mjög erfiðar vikur og misst af tveimur leikjum Chelsea þar sem hann var við hlið móður sinnar á sjúkrahúsinu. Gera má ráð fyrir að Lampard leiki ekki um helgina þegar Chelsea tekur á móti Manchester United í toppslag deildarinnar.

Lampard lék gegn Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni en var langt frá sínu besta. Hann viðurkenndi það að hafa ekki verið andlega tilbúinn í leikinn vegna ástands móður sinnar.

Ástand hennar hafði þó batnað til mikilla muna og er það ástæðan fyrir því að Lampard ákvað að leika gegn Liverpool. Svo kom bakslag á bataveginn. Lampard segir að síðustu vikur hafi verið þær erfiðustu í lífi hans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×