Lífið

Gjafmildir Coldplay-menn

Chris Martin, söngvari Coldplay
Chris Martin, söngvari Coldplay
Meðlimir Coldplay hafa líklega gefist upp í baráttunni við ólöglegt niðurhal á netinu. Þeir hafa ákveðið að bjóða fyrstu smáskífuna af nýjustu plötu sinni, Viva la Vida, frítt á vefsíðu sinni. Þá ætla þeir að spila á tveimur ókeypis tónleikum til að kynna gripinn.

Hægt verður að sækja smáskífuna, Violet Hill, í eina viku á síðunni, frá klukkan korter yfir tólf á morgun. Vínilplata með laginu mun svo fylgja með næsta hefti NME tónlistatímaritsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×