Lífið

Kosningasvindl á Hæðinni

Hver tölva hefur svokallað IP númer sem skráist inn í vefkerfi við kosningu.
Hver tölva hefur svokallað IP númer sem skráist inn í vefkerfi við kosningu. MYND/Getty Images

Tölvudeild 365 hefur komist að töluverðu kosningasvindli á Vísi í vali á fallegasta rýminu á Hæðinni. Þannig hafa nokkrar svokallaðar IP tölur kosið mörgum sinnum sama parið.

IP tala er einhverskonar einkennisnúmer á hverja tölvu sem á einungis að geta kosið einu sinni. Dæmi eru um í kosningunni á Hæðinni að ein IP tala hafi kosið mörg hundruð sinnum á dag í kosningunni.

Hjalti Egilsson vefstjóri 365 segir að málið hafi verið skoðað eftir að bera fór á töluverðu misræmi á milli niðurstöðu dómnefndar, umræðu á bloggum og úrslitum kosninganna. Í ljós hafi komið að nokkrar IP tölur hafi kosið ítrekað sama parið. Ávallt sé fylgst með því sem gerist í kosningum á Vísi og gripið í taumana ef grunur leiki á að verið sé að misnota kerfið. Sá möguleiki sé þó alltaf til staðar á netinu og þess vegna séu kosningar af þessu tagi skoðaðar reglulega.

Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstjóri þáttanna segir að ómögulegt hafi verið að vita af svindlinu. Hin pörin hafi þó bent á að ekki væri allt með felldu; „Það var líka ótrúlegt að sama parið væri alltaf að fá flest atkvæði á Vísi. Það var ekki í samræmi við kosningu sem við vorum með á vef Stöðvar 2."

Hrafnhildur bendir á að kosningin á Vísi eða öðrum netmiðlum hafi ekkert vægi í úrslitaþættinum, hún hafi einungis verið sett upp til gamans fyrir lesendur. Úrslitin ráðist með símakosningu sem hófst eftir þáttinn á fimmtudag og stendur fram að því að tilkynnt verður um sigurvegarann.

Úrslitaþátturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 næstkomandi fimmtudagskvöld. En nánari upplýsingar um þættina og pörin má finna hér ásamt spjalli og upplýsingum um rýmin og hluti í þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.