Innlent

Guðmundur í Byrginu í þriggja ára fangelsi

MYND/GVA

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í starfi sem forstöðumaður. Hann var einnig dæmdur til þess að greiða um 12 milljónir í sakarkostnað og miskabætur. Dómur var kveðinn upp fyrir stundu.

Guðmundi var gefið að sök að hafa notfært sér andlega annmarka kvennanna til þess að hafa við þær samræði eða önnur kynferðismök meðan þær voru til meðferðar í Byrginu. Málið komst upp þegar fjallað var um málefni Byrgisins í fréttaskýringarþætttinum Kompási í desember 2006. Alls kærðu átta konur Guðmund í málinu en mál fjögurra þeirra voru látin niður falla.

Guðmundur neitaði sök í málinu en Byrgismálið er langumfangsmesta sakamál sem Héraðsdómur Suðurlands hefur fjallað um. Fram kom á Vísi í síðustu viku að kalla hefði þurft til aukadómritara til þess að aðstoða við að vélrita 18 klukkutíma af segulbandsupptökum sem til eru eftir skýrslutökur vitna fyrir dómi.

Auk kynferðisbrotaákærunnar sætir bókhald Byrgisins rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Ákveðið var að ráðast í hana eftir svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins. Meðal þess sem fram kom í Kompási fyrr í vetur var að grafa þurfti upp bókhald Byrgisins upp úr bakgarði Guðmundar.

Guðmundur var dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað málsins, 3.886.758 krónur. Þá var hann dæmdur til þess að greiða málsvarnarlaun verjanda sína og réttargæslumanna fórnarlamba sinna.

Að lokum var hann dæmdur til að greiða fórnarlömbum sínum sex milljónir í miskabætur. Tvær fengur eina og hálfa milljón, ein fékk tvær milljónir og sú fjórða fékk eina milljón.


Tengdar fréttir

Ríkisendurskoðandi rannsaki rekstur Byrgisins

Félagsmálaráðuneytið hefur farið fram á það við Ríkisendurskoðanda að hann taki til skoðunar rekstur meðferðarheimilisins Byrgisins. Háttsettir aðilar í þjóðfélaginu, þar á meðal þingmenn og ráðherrar, hafa fengið nafnlaust bréf með alvarlegum ásökunum á hendur forstöðumanni Byrgisins.

Tvær kærur til viðbótar á Guðmund í Byrginu

Tvær konur til viðbótar hafa lagt fram kæru á hendur Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins. Kærurnar eru því orðnar sex talsins. Seint á mánudaginn bárust sýslumanni á Selfossi kærur frá tveimur konum. Kærurnar varða meint kynferðislegt samband í Byrginu og beinast gegn Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins.

Áfallateymi stofnað fyrir fórnarlömb Byrgisins

Enn fjölgar kærum á hendur Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins. Sex stúlkur hafa nú lagt fram kæru vegna kynferðislegrar misnotkunar og áreitis. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að komið yrði á fót áfallateymi á Landspítalanum sem liðsinni og leiðbeini fyrrverandi skjólstæðingum Byrgisins. ,,Trúi því þegar ég sé það" segir ein þeirra stúlkna sem kært hefur Guðmund.

Fórnarlömb forstöðumanns Byrgisins fá enga hjálp

Aðstandendur stúlknanna úr Byrginu hrópa á hjálp. Móðir einnar þeirra segir tvær í bráðri sjálfsvígshættu en þrjár munu hafa lent í neyslu á nýjan leik. Í gær var einni stúlkunni neitað um áfallahjálp á Landspítalanum með þeim rökum að fórnarlömb forstöðumanns Byrgisins fengju hjálp annars staðar. Sú hjálp hefur þó enn ekki borist.

Úttekt gerð á Byrginu 2002

Páll Pétursson, sem gegndi starfi félagsmálaráðherra á árunum 1999 til 2003, segir að félagsmálayfirvöld hafi gert úttekt á starfi Guðmundar Jónssonar í Byrginu árið 2002. Stjórnvöld vissu að starf Byrgisins, og framganga Guðmundar Jónssonar, voru mjög gagnrýniverð.

Umfjöllun Kompáss ekki næg ástæða til rannsóknar

Umfjöllun Kompáss um Byrgið er ekki næg ástæða til sérstakrar rannsóknar segir sýslumaðurinn á Selfossi. Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir og læknir Byrgisins, segir þær ásakanir sem fram komu í þættinum í gær, vera reiðarslag.

Samhjálp falið að taka við verkefnum Byrgisins

Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið á grundvelli skýrslu Ríkisendurskoðunar að hætta að styrkja rekstur Byrgisins og vísa málinu til Ríkissaksóknara. Þetta kom fram hjá Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra á fréttamannafundi sem hann efndi til kl. 17 vegna skýrslunnar. Samhjálp hefur verið falið að taka við verkefnum Byrgisins.

Byrginu lokað

Ákveðið hefur verið að loka Byrginu en Guðmundur Jónsson, stjórnarformaður Byrgisins, tilkynnti þetta í viðtali við fréttastofu Útvarps í dag. Guðmundur sagði stjórnina hafa tekið þessa ákvörðun vegna þess a að félagsmálaráðuneytið ætlaði að stöðva greiðslur þangað.

Gerir ráð fyrir að dómi verði áfrýjað

Hilmar Baldursson, verjandi Guðmundar Jónssonar í Byrginu, sagði við fréttamenn eftir að dómur yfir Guðmundi var kveðinn upp að hann gerði ráð fyrir að honum yrði áfrýjað.

Fjöldi fyrrum skjólstæðinga á götunni

Margir þeirra sem dvöldu í Byrginu og á drengjaheimilinu í Breiðavík hafa leitað til Geðhjálpar. Þeir eru heimilislausir að sögn framkvæmdastjóra samtakanna. Stjórn Geðhjálpar hefur ritað ríkisstjórninni harðort bréf vegna málsins.

Leynd aflétt af svartri skýrslu um Byrgið

Svört skýrsla um fjármál og rekstur Byrgisins sem unnin var fyrir utanríkisráðuneytið fyrir fimm árum, hefur aldrei komið formlega fyrir sjónir fjárlaganefndar Alþingis.

Ríkisstjórn fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins í 4 ár

Ríkisstjórninni var fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins vorið 2003. Síðan þá hefur stjórnin veitt Byrginu á annað hundrað milljónir króna. Fjölmargar viðvörunarbjöllur hafa klingt á síðustu fjórum árum án þess að við þeim hafi verið brugðist. Málið er klúður frá upphafi til enda, segir Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar.

Deilt um fjölda þungana á Byrginu

Pétur Hauksson, geðlæknir, segist harma orð fyrrverandi landlæknis um að þunganir nokkurra kvenna af völdum starfsmanna Byrgisins séu sögusagnir. Landlæknir staðhæfir að aðeins ein þungun hafi átt sér stað í Byrginu.

Ung kona vitnar um kynferðissamband við Guðmund í Byrginu

Tuttugu og fjögurra ára kona, sem var skjólstæðingur Guðmundar Jónssonar forstöðumanns Byrgisins, vitnar um það, í viðtali í Íslandi í dag á eftir, að hún átti í kynferðissambandi við hann í nærri tvö ár. Hún hefur sett sig í samband við lögreglu og mun leggja fram formlega kæru í fyrramálið.

186,3 milljónir króna greiddar til Byrgisins

Samtals nema greiðslurnar til Byrgisins frá því árið 1999 til dagsins í dag, með húsaleigu, 186,3 milljónum. Eftirlitsskylda ríkisendurskoðunar og félagsmálaráðuneytisins er ótvíræð. Læknar bera aðeins faglega ábyrgð á læknastarfi.

Aðgerðarleysi í málefnum Byrgisfólksins er mannréttindabrot

„Ég verð bara að segja að hann opinberar þá sýn okkar á það að fagfólk er ekki að horfa á hlutina í samræmi við raunveruleikann," segir Sveinn Magnússon framkvæmdarstjóri Geðhjálpar um ummæli Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis í fréttaskýringarþættinum Kompás í vikunni.

Önnur kæran lögð fram gegn Guðmundi í Byrginu

Þrítug kona lagði í dag fram kæru gegn Guðmundi Jónssyni forstöðumanni Byrgisins, fyrir kynferðislega misbeitingu um nokkurra ára skeið þegar hún var skjólstæðingur Byrgisins. Þetta er önnur konan sem leggur fram kæru á hendur Guðmundi.

Viðurkenndu að mistök hefðu átt sér stað gagnvart Byrginu

Fyrir fjórum árum flutti félagsmálaráðuneytið fjárframlag Byrgisins á nýja kennitölu, þar sem líknarfélagið var gjaldþrota. Ríkisendurskoðun gaf leyfi fyrir þessu að uppfylltum ströngum skilyrðum sem ekki var fylgt eftir.

Guðmundur í Byrginu gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsisdóm

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, á yfir höfði sér sex ára fangelsi verði hann ákærður og fundinn sekur um fjárdrátt og umboðssvik. Úttekt Ríkisendurskoðunar á rekstri meðferðarheimilisins bendir til fjármálamisferlis upp á tugmilljónir króna.

Guðmundur hefur ekki enn kært

Enn hefur ekki borist kæra frá Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins, en hann sagði í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi að hann ætlaði að leggja fram kæru á hendur stúlku fyrir nauðgun, sem sjálf kærði hann fyrir nauðgun.

Ráðuneyti fær Byrgispeninga

Fjárlaganefnd Alþingis hefur nú heimilað félagsmálaráðuneytinu að ráðstafa þeirri fjárhæð sem var ætluð Byrginu á þessu ári að sögn Ragnhildar Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra. Hafði ráðuneytið lagt fram beiðni þess efnis. Um er að ræða 29.6 milljónir króna.

Byrgið ætlar í meiðyrðamál

Forsvarsmenn meðferðarheimilisins Byrgisins ætla að höfða meiðyrðamál fyrir dómstólum gegn Stöð 2 vegna umfjöllunar sjónvarpsþáttarins Kompás í gærkvöldi um Guðmund Jónsson, forstöðumann heimilisins. Hilmar Baldursson, héraðsdómslögmaður, sagði í samtali við fréttastofuna í dag, að hann myndi væntanlega á morgun leggja fram kæru á stöðina fyrir hönd stjórnar Byrgisins.

Ríkislögreglustjóri með mál Byrgisins

Saksóknari efnahagsbrota hjá embætti Ríkislögreglustjóra hefur fengið málefni Byrgisins til rannsóknar. Unnið er að eflingu á innra eftirliti í félagsmálaráðuneytinu til þess að tryggja að sambærileg staða komi ekki upp aftur.

Grunur um að starfsmenn Byrgis hafi getið vistkonum börn

Grunur leikur á að fleiri en ein kona í meðferð í Byrginu hafi orðið barnshafandi eftir starfsmenn þar. Kona kærði í dag Guðmund Jónsson forstöðumann fyrir kynferðisbrot. Þrjár að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Formaður Samfylkingarinnar vill opinbera rannsókn á starfsemi Byrgisins.

Rannsókn á Byrginu að ljúka

Rannsókn Ríkisendurskoðunar á fjármálum Byrgisins lýkur fyrir mánudag að sögn Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda. Félagsmálaráðuneytið óskaði þess þann 16. nóvember. Greiðslur til Byrgisins voru stöðvaðar 29. desember að beiðni Ríkisendurskoðunar.

Ákærur á hendur Guðmundi í Byrginu þingfestar

Ákærur á hendur Guðmundi Jónssyni í Byrginu voru þingfestar í héraðsdómi Suðurlands í dag. Um er að ræða fjórar konur og mun ein þeirra hafa verið undir lögaldri.

Guðmundur var með dýflissu í Hafnarfirði

Í framburði fórnarlamba Guðmundar Jónssonar í Byrginu kemur fram að á heimili hans í Háholti í Hafnarfirði var dýflissa sem Guðmundur notaði þegar hann stundaði bdsm kynlíf með skjólstæðingum sínum á meðferðarheimilinu.

Taldi ríkisendurskoðun fylgjast með fjármálum Byrgisins

Ríkisendurskoðun átti að hafa eftirlit með fjármálum Byrgisins að mati formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann segir að þrátt fyrir svarta skýrslu um fjármál Byrgisins árið 2002 hafi hann talið að eftirlit með félagasamtökunum yrði tryggt með því að gera Byrgið að sjálfseignarstofnun.

Guðmundur í Byrginu vill stofna Bjarg og Klett

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur sótt um leyfi til að breyta sex sumarhúsalóðum sínum í tvö lögbýli. Lögbýlin hafa hlotið nöfnin Bjarg og Klettur. Mikils óróa gætir vegna þessa meðal sumarhúsaeigenda á svæðinu.

Eiginkona Guðmundar í Byrginu vill þrjár milljónir í skaðabætur

Helga Haraldsdóttir, eiginkona Guðmundar Jónssonar í Byrginu, hefur stefnt Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni DV, og tveimur viðmælendum hennar, Magnúsi Einarssyni og Ólöfu Ósk Erlendsdóttur, fyrir meiðyrði sem Helga segir að hafi verið höfð um sig í helgarblaðsviðtali sem DV birti þann 2. ágúst í fyrra.

Guðmundur Jónsson í Byrginu var kærður í morgun

Ólöf Ósk Erlendsdóttir lagði fram kæru í dag á hendur Guðmundi Jónssyni, forstöðumanni Byrgisins. Þrjár konur að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Ólöf sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær. Hún fór í meðferð á Byrginu í apríl 2004 og kveðst hafa hafið náið samband við Guðmund Jónsson forstöðumann 18. nóvember sama ár. Að hennar sögn lauk sambandinu fyrir þremur til fjórum vikum. Í viðtalinu í gær sakaði hún Guðmund um fjársvik og trúnaðarbrest. Hún hefur margvísleg gögn undir höndum sem sanna kynferðislegt samband milli þeirra Guðmundar, þar á meðal myndbönd, myndir, tölvupósta, bréf og ljóð.

Guðmundur í Byrginu kærir þjófnað

Guðmundur Jónsson, kenndur við líknarfélagið Byrgið, kærði í byrjun nóvember þjófnað á munum sem hann segir tilheyra Byrginu. Kæran kom í kjölfarið á því að karlmaður fór upp á Efri-Brú, þar sem Byrgið var rekið áður en því var lokað vegna gruns um fjármálamisferli, og fékk afhenta muni og varning sem þar var geymdur í læstri geymslu.

Fjármálaúttekt á Byrginu lýkur í annarri viku janúar

Greiðslur ríkisins til Byrgisins hafa verið frystar að tillögu Ríkisendurskoðunar. Fær Byrgið því ekki fé úr ríkissjóði nú á fyrstu dögum ársins eins og til stóð. Fjármálaúttekt ríkisendurskoðunar á Byrginu lýkur í annarri viku janúar.

Byrgismálið til ríkissaksóknara

Rannsókn á meintum misbeitingarbrotum Guðmundar Jónssonar í Byrginu er á lokastigi og verður málið sent til Ríkissaksóknara á næstu dögum. Í það minnsta átta konur lögðu inn kæru á hendur Guðmundi en málið hefur verið til rannsóknar hjá Sýslumanninum á Selfossi.

Ríkisstjórnin vissi af svartri skýrslu um Byrgið

Ríkisstjórnin vissi af svartri skýrslu um fjármál Byrgisins fyrir röskum fjórum árum. Þetta fullyrðir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingar. Minnisblað var lagt fram í ríkisstjórn um málið árið 2002 og síðan hafi ríkisstjórnin en ekki fjárlaganefnd ákveðið framlög til Byrgisins.

Krefst betri þjónstu fyrir Byrgis- og Breiðavíkurfólk

Geðhjálp krefst þess að stjórnvöld veiti því fólki sem dvaldi í Byrginu og í Breiðuvík aukna þjónustu og gagnrýnir harðlega hvernig staðið hefur verið að því að koma þeim til aðstoðar.

Krefst verndar fyrir stúlkurnar

Pétur Hauksson geðlæknir vill að stúlkurnar sem urðu illa úti í dvöl sinni í Byrginu fái vernd. Þær séu í hættu og séu skelfingu lostnar. Félagsmálaráðherra á stíga fram og viðurkenna að ríkið beri ábyrgðina.

Fórnarlömb Guðmundar í Byrginu vilja 10 milljónir í bætur

Vísir hefur undir höndum ákærur Ríkissaksóknara gegn Guðmundi Jónssyni í Byrginu sem þingfestar voru í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Í þeim kemur meðal annars fram að fjórar stúlkur sem Guðmundi er gefið að sök að hafabrotið gegn kefjast alls 10 milljóna króna í skaðabætur.

Aðstoð við Byrgisfólk takmörkuð

Móðir stúlku sem kært hefur Guðmund í Byrginu segir það hneyksli hversu hægt gangi að veita fyrrverandi vistmönnum þá aðstoð sem forsætisráðherra lofaði í síðustu viku.

Guðmundur í Byrginu látið af störfum

Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, hefur látið af störfum meðan rannsókn fer fram á málefnum Byrgisins. Hann kærði fréttaskýringaþáttinn Kompás til lögreglu í dag. Ekkert opinbert eftirlit er með meðferðarheimilum og getur hver sem er stofnað þau. Guðmundur, og menn á hans vegum, hafa undanfarin misseri verið umsvifamiklir lóðakaupendur í Grímsnesi.

Aðalmeðferð í Byrgismáli í fjóra daga

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur Guðmundir Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins, vegna meintra kynferðisbrota hans gegn fjórum konum hófst í Héraðsdómi Suðurlands í morgun.

Vistmenn Byrgis orðnir sakborningar

Fyrrverandi vistmenn í Byrginu hafa verið boðaðir í yfirheyrslu til Skattrannsóknarstjóra með réttarstöðu sakbornings. Svo virðist sem nýverið hafi verið skráðar á þá launagreiðslur og þeir grunaðir um að hafa ekki gefið þær upp. Konur sem kært hafa Guðmund fyrir kynferðisbrot eru meðal þeirra sem boðaðir eru í yfirheyrslu.

Guðmundur í Byrginu ætlar að kæra nauðgun

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, segist ætla að kæra stúlku fyrir nauðgun, sem sjálf hefur kært hann fyrir nauðgun. Þetta sagði hann í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld. Myndband hefur gengið manna á millum á netinu í dag þar sem Guðmundur sést í BDSM kynlífsleikjum með stúlkunni.

Tuttugu manns úr Byrginu á götunni og í fíkniefnaneyslu

félagsmál „Vímuefna- og áfengisneysla í þessu óhófi er geðröskun. Hvort sem það er orsök eða afleiðing viðkomandi manneskju kemur málinu bara ekkert við,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×