Innlent

Góð reynsla af rekstri læknislauss neyðarbíls

Reynslan af nýju fyrirkomulagi á rekstri neyðarbíls er góð, að sögn læknis á bráðasviði. Ótti um að hætta gæti fylgt því að hafa ekki lækni í bílnum í útköllum hefur reynst ástæðulaus, að minnsta kosti hingað til.

Þrír mánuðir eru liðnir frá því að hætt var að manna neyðarbíl með lækni í öll útköll og sjúkraflutningamenn með með bráðatæknimenntun leystu læknana af að þessu leyti.

Sú ákvörðun var afar umdeild og var því meðal annars haldið fram að með breytingunni væri verið að stofna lífi borgaranna í hættu og draga úr líkum á að tækist að endurlífga fólk í dái. Vel hefur verið fylgst með hvernig til hefur tekist. Of snemmt er að draga afdráttarlausa ályktun af tilrauninni, en vísbendingarnar eru klárar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×