Lífið

Kompás í Kambódíu

Um helmingur kambódísku þjóðarinnar eru undir 25 ára aldri. Um 50.000 börn eru án menntunar sem jafngildir fjölda allra grunnskólabarna á Íslandi. Kambódía á sér mikla en átakanlega sögu. Þriggja áratuga stíð setti mark sitt á þjóðina en friður komst á í landinu fyrir níu árum. Afleiðingar stríðsátakanna eru gífulegar.

Rauðu Khmerarnir brutu niður innviði samfélagsins og reyndu að útrýma kennurum, læknum og menntafólki. Stór hluti þessarra þjóðfélagsþegna voru fangelsaðir í S-21 öryggisfangelsinu þar sem fangar voru yfirheyrðir, pyntaðir og teknir af lífi.

Barnaheill á Íslandi hefur stutt verkefni Barnaheilla í Kambódíu í tæp þrjú ár í náinni samvinnu við Barnaheill í Noregi sem stjórnar verkefninu. Markmið samtakanna er að byggja upp skólastarf í sveitahéruðum þar sem heilu kynslóðirnar hafa farið á mis við menntun vegna átaka í landinu.

Brynja Dögg Friðriksdóttir fréttmaður og Jakob Halldórsson tökumaður í Kompási, eru nýkomin frá Kambódíu þar sem þau kynntu sér uppbyggingastarf Barnaheilla í héraðinu Kampong Cham. ,,Þetta var einstök upplifun. Við heimsóttum meðal annars þorpið Veal Bompong sem er mjög afskekkt þorp í Kambódíu. Skærur voru í héraðinu allt fram til ársins 1999. Það hafa aldrei ferðamenn komið í þorpið og margir íbúanna hafa aldrei séð hvítt fólk áður. Fæstir hinna fullorðnu eru læsir og hreint vatn er af skornum skammti," segir Brynja Dögg.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í landinu og ljóst er að miklar breytingar munu verða á efnahag landsins á næstu árum. ,,Þetta er stórkostlegt land með mikla menningararfleið. Þjóðarstolt Kambódíumanna, Angkor Wat hofið, ættu flestir að þekkja en landið hefur upp á svo miklu meira að bjóða," segir Jakob.

Sýnt verður frá ferðinni í síðasta Kompásþætti vetrarins annað kvöld kl:21:50 á Stöð 2.

BDF
Þessi hópur fylgdist áhugasamur með þegar starfsmenn Barnaheilla komu til Meak skóla í Kampong Cham sýslu.BDF
Öll skólabörn klæðast skólabúningum.BDF
Þessar ungu stúlkur seldu snakk nálægt Chor Norm skólanum.BDF
Einbeitingin leynir sér ekki hjá þessum unga strák.BDF
Það er ekki á hverjum degi sem gesti ber að garði í Veal Bompong. Margir þorpsbúar klæddu sig upp af tilefninu.BDF
Yfirmunkurinn í Veal Bompong var afar þakklátur Barnaheillum á Íslandi fyrir að byggja skóla í þorpinu. Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Sakem Kong, aðstoðarverkefnisstjóri menntaverkefnisins, votta munkinum virðingu sína.BDF
239 börn eru í skólanum í veal Bompong. Þrír kennarar sjá um kennsluna.BDF
BDF
Kambódíumenn eru flestir búddatrúar.BDF
Kambódíumenn eru úrræðagóður og leiknir að flytja mikinn varning á reiðhjólum og vespum.BDF
Á rússneska markaðinum í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu er líf og fjör.BDF
BDF
Séð yfir Tonle Sap ánna í Phnom PenhBDF
Þessi unga kona býr í fátækrahverfi í Phnom Penh. Hún á brátt von á sínu öðru barni en fyrra barn hennar dó. Hún nýtur stuðning móður sinnar en barnsfaðir hennar yfirgaf hana.BDF
BDF
BDF
Nautgripir ganga víða lausir í sveitum Kambódíu. Þessir voru á skólalóð Meak skóla.BDF
Vegir eru misgóðir í Kambódíu.BDF
BDF
Búddanunna.BDF
BDF
Kennarar, læknar og menntafólk var fangelsað í S-21 öryggisfangelsinu þar sem það var yfirheyrt, pyntað og tekið af lífi. Aðeins örfáir einstaklingar komust lífs af eftir dvöl þar.BDF
Teknar voru myndir af öllum föngum í S-21 fangelsinu.BDF
Rauðu Khmerarnir grófu tæplega 9000 manns í fjöldagröf í Cheoung Ek, öðru nafni Killing fields. Nú stendur þar minnisvarði um fórnarlömb Rauðu Khmeranna. Alls hafa fundist 19.440 fjöldagrafir í Kambódíu.BDF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×