Spyrja hvort Guðmundur Þóroddsson sæti pólitískri ábyrgð 30. maí 2008 16:51 Sigrún Elsa Smáradóttir.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboð spyrja sig hvort fulltrúar sjálfstæðismanna í Orkuveitu Reykjavíkur séu að láta starfsmann Orkuveitunnar axla ábyrgð á eigin mistökum og innanflokksátökum. Samkomulag var gert við Guðmund Þóroddsson um að hann sneri ekki aftur til starfa hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann hefur verið í leyfi frá starfi forstjóra vegna starfa sinna hjá Reykjavík Energy Invest. „Það er náttúrulega bara verið að láta manninn fara og við höfum ekki fengið neinar haldbærar skýringar á því. Nema að það tengist þeim uppákomum sem hafa verið hjá REI," segir Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn OR. Máli sínu til útskýringar vísar hún til bókunar sinnar og Svandísar Svavarsdóttur, fulltrúa VG í stjórninni, þar sem kemur fram að þegar málefni REI komust fyrst í hámæli hafi Guðmundur Þóroddsson verið að vinna í fullu umboði þáverandi borgarstjóra, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Einnig megi gera ráð fyrir því að hann hafi starfað í fullu umboði núverandi stjórnar meðal annars þegar formaður stjórnar REI í félagi við varaformann undirritaði samninga í Djibouti og Yemen. Í báðum þessum tilvikum hafi pólitískt kjörnir fulltúar reynst umboðslausir gagnvart borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Það sé því ljóst að þá árekstra sem ítrekað hafi komið upp í málefnum REI, megi rekja til innanflokksátaka í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Sigrún segir að þar sem gert hafi verið samkomulag við Guðmund Þóroddsson telji hún að það hefði ekki haft neitt upp á sig að greiða atkvæði gegn því í stjórninni. Því hafi hún ákveðið að sitja hjá.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira